Skallagrímur, Fjölnir og Haukar byrja af krafti Anton Ingi Leifsson skrifar 21. apríl 2021 20:59 Mikilvægur sigur Hauka í kvöld. vísir/vilhelm Skallagrímur vann ansi öflugan heimasigur á Keflavík í kvöld er Domino's deild kvenna fór aftur af stað. Haukar gerðu góða ferð í Stykkishólm og Fjölnisstúlkur unnu í Kópavogi.
Skallagrímur vann tólf stiga sigur á Keflavík en umferðin í kvöld var sú fyrsta eftir kórónuveiruhlé. Lagði Skallagrímur grunnin að sigrinum með frábærum þriðja leikhluta. Embla Kristínardóttir skoraði þrettán stig, tók sjö fráköst, gaf fjórar stoðsendingar og var með alls 23 framlagsstig í liði Skallagríms. Nikita Telesford kom næst með sautján stig, níu stoðsendingar og 21 í framlag. Anna Ingunn Svansdóttir var stigahæst hjá Keflavík með 27 stig en Daniela Wallen Morillo skoraði tuttugu stig ásamt því að taka tuttugu fráköst og gefa sjö stoðsendingar. Keflavík er í öðru sætinu með 24 stig en Skallagrímur er í fimmta sætinu með fjórtán stig. Haukar gerðu góða ferð í Stykkishólm þar sem Hafnarfjarðarliðið vann þrettán stiga sigur, 92-79, á heimastúlkum í Snæfell. Bríet Sif Hinriksdóttir var stigahæst í Haukaliðinu með tuttugu stig en Alyesha Lovett skilaði sautján stigum, níu fráköstum og fimm stoðsendingum. Emese Vida var stigahæst hjá heimaliðinu með tuttugu stig og sextán fráköst auk þess að gefa fimm stoðsendingar en næstar komu Haiden Denise Palmer og Tinna Guðrún Alexandersdóttir með sautján stig hvor. Haukar eru nú með 24 stig, líkt og Keflavík og Valur - en leikur Vals og KR er í gangi, en Snæfell er í næst neðsta sæti deildarinnar. Fjölnir sótti tvö góð stig í Kópavoginn en lokaniðurstaðan varð tíu stiga munur, 79-69. Leikurinn var jafn og spennandi í raun annan leikinn. Jessica Kay Loera var stigahæst í liði Breiðabliks með nítján stig og sex stoðsendingar en hæst í framlagi var Isabella Ósk Sigurðardóttir með sex stig og fjórtán fráköst. Í liði Fjölnis var það Ariel Hearn sem dró vagninn með 25 stig, átján fráköst og sex stoðsendingar. Lina Pikciuté bætti við 21 stigi og þrettán fráköstum. Fjölnir er í fjórða sætinu á meðan Breiðablik er í því þriðja neðsta.
Dominos-deild kvenna Skallagrímur Fjölnir Haukar Mest lesið John Barnes greindist með krabbamein Fótbolti Tileinkaði Úkraínu sigurinn Sport Missir af HM í fótbolta vegna samfélagsmiðlafærslu Fótbolti Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Körfubolti Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Körfubolti Blóðbað í Köben: „Þetta var helvítis bras“ Sport Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein Enski boltinn Fékk ekki að ferðast með landsliðinu til Bandaríkjanna Fótbolti Ver val á meintum kynferðisbrotamanni Fótbolti „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Enski boltinn Fleiri fréttir Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Sjá meira