Lífið

Affleck byrjaði að senda ástarbréf og virðist hafa krækt í Jennifer Lopez á ný

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ben Affleck and Jennifer Lopez saman á frumsýningu Gigi árið 2004.
Ben Affleck and Jennifer Lopez saman á frumsýningu Gigi árið 2004. Vísir/Frank Trapper/Corbis /Getty Images)

Jennifer Lopez og Ben Affleck eyddu síðustu helgi saman í Montana og greina erlendir miðlar nú frá því að ástarsamband sé hafið milli þeirra á ný, sautján árum eftir að þau slitu sambandi sínu á sínum tíma.

Ekki er langt síðan að Lopez og Alex Rodriguez hættu saman eftir fjögurra ára samband og slitu trúlofun sinni. Lopez og Rodriguez byrjuðu að hittast árið 2017 og árið 2019 trúlofaðist parið. Parið var byrjað að skipuleggja brúðkaup áður en kórónuveirufaraldurinn skall á í fyrra en vegna faraldursins var öllum áætlunum um brúðkaup frestað. Nú er því sambandi aftur á móti lokið.

Vefsíðan TMZ greinir frá því að Affleck hafi byrjað að senda Lopez ástarbréf í formi tölvupósts í febrúar og byrjaði það þegar hún var enn trúlofuð Rodriguez og var við tökur á kvikmyndinni Shotgun Wedding í Dóminíska Lýðveldinu.

Jennifer Lopez og Ben Affleck voru á sínum tíma par, frá árinu 2002-2004 og voru um tíma trúlofuð. Um helgina voru þau saman á skíðum og dvöldu í skíðaskála sem Affleck á í Montana. Daily Mail hefur einni fjallað ítarlega um málið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.