Tíska og hönnun

Svipmyndir frá fyrsta degi HönnunarMars

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Þórdís Kolbrún R. Gylfadótti, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri og Halla Helgadóttir, framkvæmdastjóri Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs.
Þórdís Kolbrún R. Gylfadótti, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri og Halla Helgadóttir, framkvæmdastjóri Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs. Aldís Páls

HönnunarMars í maí opnaði í gær þar sem hátt í 90 sýningar breiddu úr sér um höfuðborgarsvæðið. 

Að gefnu tilefni var óformleg opnun hátíðarinnar á Hafnartorgi þar sem Þórdís Kolbrún R. Gylfadótti, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri og Halla Helgadóttir, framkvæmdastjóri Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs opnuðu hátíðina með trompetblæstri frá Ara Braga Kárasyni. Rigningin setti sinn svip á þessa óformlegu opnun sem skapaði óneitanlega ákveðið mótvægi við bakgrunnsverkið, Sólarhringur eftir Þórdísi Erlu Zoega.

Ari Bragi mundar trompetið.Aldís Páls

Sýningarstaðir HönnunarMars teygja sig vítt og breitt um höfuðborgarsvæðið, allt frá Hafnartorgi og miðbæ, Granda, Vatnsmýri, Laugaveg, Hverfisgötu, Skeifu, Elliðaárstöð, Kópavog og Garðabæ.

Framtíðin, tækni, sjálfbærni, náttúra, arfleifð og nýsköpun er þátttakendum hugleikin viðfangsefni á hátíðinni í ár sem veitir innblástur inn í nýja tíma. Kynntu þér fjölbreytta dagskrá HönnunarMars í maí sem endurspeglar einstaka grósku íslensks hönnunarsamfélags á þessum umbrotatímum.

Engir stórir og mannmargir viðburðir eru á hátíðinni í ár vegna Covid. Allar sýningar og sýningarstaðir HönnunarMars fylgja gildandi sóttvarnarreglum er varða samkomutakmarkanir og grímuskyldu.

Hér fyrir neðan má finna svipmyndir frá fyrsta degi hátíðarinnar eftir ljósmyndarann Aldísi Pálsdóttur. Alla umfjöllun Vísis um hátíðina má finna í flokknum HönnunarMars. 

Íslensk hönnun kynnt á sýningu í Epal.Aldís Páls
Frá fyrsta degi HönnunarMars.Aldís Páls
Kolagatan á Hafnartorgi er ein af mörgum sýningarstaðsetningum HönnunarMars í ár.Aldís Páls
Gunni Hilmars hlaut Indriðaverðlaun í Grósku í gær. Ítarlegt viðtal við hann birtist á Vísi fyrr í dag.Aldís Páls
Frá setningu HönnunarMars 2021 í rigningunni í gær.Aldís Páls
Studio HönnunarMars þar sem meðal annars má finna skemmtilegan myndavegg.Aldís Páls

Nadine Guðrún Yaghi fréttamaður Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar var stödd á opnun HönnunarMars í gær og var hún í beinni útsendingu þaðan í kvöldfréttunum. Innslagið má sjá hér fyrir neðan. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.