Lífið

Hjörtur og Bera eiga von á barni

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Hjörtur Hermannsson og Bera Tryggvadóttir eiga von á sínu fyrsta barni.
Hjörtur Hermannsson og Bera Tryggvadóttir eiga von á sínu fyrsta barni. INSTAGRAM

Fótboltakappinn Hjörtur Hermannsson og kærasta hans Bera Tryggvadóttir eiga von á sínu fyrsta barni. Þetta tilkynntu þau bæði á Instagram reikningum sínum í kvöld.

Hjörtur er 26 ára varnarmaður Bröndby í Danmörku og íslenska landsliðsins. Hann varð Danmerkurmeistari með liðinu á mánudaginn og lék hann nær allan leikinn.

Hjörtur er orðaður við þýska úrvalsdeildarliðið Union Berlín en samningur hans við danska stórveldið rennur út næsta sumar. Hann hefur verið hjá Bröndby síðan 2016 en þar áður var hann á mála hjá PSV í Hollandi.

Bera skrifar í Instagram færslunni að draumur þeirra sé að rætast og fylgir með mynd af parinu ásamt hundi þeirra sem hún kallar „einkasoninn.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.