Það er nefnilega misjafnt hvað fólk er að ganga í gegnum og hvaða skref það getur tekið til þess að taka lífið lengra. Í nýjasta þættinum af hlaðvarpinu Normið tala þær Eva Mattadóttir og Sylvía Briem Friðjónsdóttir meðal annars um mikilvægi samskipta og hvernig hægt er að nýta hæfileikana sína betur.
Um er að ræða seinni þáttinn um það að taka lífið lengra. Fyrri hlutann má finna HÉR á Vísi.
Gildi í tengslunum
Í þættinum fara þær yfir það sem gæti verið að halda fólki föstu í hjólförum og hvernig skref væri hægt að taka til þess að komast upp úr þeim. Oft er fólk að gera eitthvað ómeðvitað sem er að koma í veg fyrir að það tekur skref áfram.
„Þú heldur að samskipti skipti ekki máli. Þetta er eitthvað sem ég held að margir geri sér ekki grein fyrir, af því að það eru ekkert alltaf allir í stuði til þess að tala við fólk,“ segir Eva. Þær ræddu einnig um tengslamyndun og networking.
„Þegar maður velur að tengjast fólki og að vera þannig manneskja að maður fari inn í aðstæður, kynni sig, kynnist aðeins fólki, spyr fólk og hlustar og alls konar og myndar þessi tengsl þá er klikkað gildi í því,“ útskýrir Eva.
„Þessi samskipti og að kynnast nýju fólki sem manni líkar við og getur lært af, þetta eru bara einhver mestu lífsgæði. Maður finnur að þetta opnar hurðar, það eru ævintýri í þessu og það eru tækifæri,“ bætir Sylvía við. „Ég er að tala um þegar þú finnur einlæga tengingu við aðra manneskju og úr því verður eitthvað skemmtilegt samband.“
Mikilvægt að hlusta
Þær ítreka að það að byggja upp sambönd þýði ekki að þú þurfir að smjaðra fyrir fólki, ráðskast með fólk eða setja upp grímu eða vera eitthvað sem þú ert ekki.
„Þá er maður ekki að gera sjálfum sér neina greiða,“ útskýrir Eva. Auðvitað á fólk misauðvelt með þessar aðstæður og að hleypa fólki að sér, en það geta fylgt því mikil lífsgæði að tengjast öðrum. Það sem þú segir skiptir ekki endilega mestu máli.
„Aðalsamskiptatólið sem mér finnst skipta öllu máli í samskiptum er hlustun. Allan daginn. Að ég sé ekki að reyna að fylla upp í þagnir og éta öll samtölin, það eru ekki samskipti,“ segir Sylvía.
Í þættinum tala þær líka um að sýna fólki virðingu, því þá mun fólk líklega sýna þér viðringu til baka. Svo fara þær yfir það að leyfa hæfileikum að njóta sín og líka að skoða hvar þú hefur tækifæri til að læra og vaxa og margt fleira.
Þáttinn má heyra í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan.
Hlaðvarpsþættirnir Normið birtast vikulega hér á Vísi og á öllum helstu hlaðvarpsveitum. Settu follow í hlaðvarpsappinu þínu og þá sérðu alltaf þegar nýr þáttur mætir á svæðið. Þáttastjórnendur eru Eva Mattadóttir og Sylvía Briem Friðjóns, athafnakonur og þjálfarar. Hægt er að fylgjast með þeim á Instagram síðunni @normið og HÉR á Vísi.