Nagy verður ekki með Valsliðinu næsta vetur Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. júní 2021 16:30 Martin Nagy fagnar með Valsliðinu í vetur. Vísir/Vilhelm Martin Nagy, markvörður Íslandsmeistara Vals, sem fór á kostum í úrslitakeppninni með Valsliðinu hefur samkvæmt heimildum íþróttadeildar samið við þýska b-deildarliðið Gummersbach.
Nagy hafði gert munnlegt samkomulag við Val um að leika með félaginu á næstu leiktíð eins og hann greindi frá sjálfur í Seinni bylgjunni á Stöð 2 Sport eftir að Valur vann Hauka í úrslitum Íslandsmótsins á Ásvöllum. Umboðsmaður Nagy, Arnar Theódórsson, mun hafa boðið Gummersbach leikmanninn þrátt fyrir að hann hafi gert munnlegt samkomulag við Val. Samkvæmt heimildum íþróttadeildar þá samþykkti ungverski markvörðurinn tilboð þýska liðsins í dag. Guðjón Valur Sigurðsson er þjálfari Gummersbach og með liðinu leika Elliði Snær Viðarsson og þá hefur Hákon Daði Styrmisson samið við félagið. Það er athyglisvert að Martin Nagy er hugsaður sem annar markvörður eða jafnvel þriðji markvörður þýska liðsins. Valsmenn eru þó ekki á flæðiskeri staddir hvað varðar markmann því Björgvin Páll Gústavsson mun ganga til liðs við Val í sumar. Ljóst er aftur á móti að Valsmenn þurfa að leita sér að markmanni sem mun standa við hlið Björgvins Páls á næstu leiktíð. Kannski vonbrigði fyrir Valsmenn sem tóku Nagy með það fyrir augum að hann myndi sýna og sanna hvað í honum býr. Það var hins vegar ekki fyrr en í síðari hluta mótsins sem mikil vinna skilaði sér hjá þessum unga ungverska markverði sem sló sannarlega í gegn þegar mest á reyndi.
Olís-deild karla Valur Mest lesið Setti nýtt heimsmet örfáum dögum eftir svekkelsið á Steraleikunum Sport HM ferðalagi Suður-Afríku frestað: „Verið að hafa okkur að fíflum“ Fótbolti Freyr rekinn frá Brann Fótbolti Flugu með Herðubreið á HM Fótbolti FIFA fengið nóg og herðir tökin fyrir HM Fótbolti Plataði líka myndatökumanninn upp úr skónum Íslenski boltinn Keegan með fjórða stigs krabbamein Enski boltinn Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Enski boltinn Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Handbolti Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Enski boltinn Fleiri fréttir Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sigursteinn barðist við tárin Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Hákon Daði til Aftureldingar Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn FH-ingar boða til blaðamannafundar Átta mörk Óðins en gullið að renna úr greipum Benedikt og Sigurjón leiddu Kolstad að titlinum Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Einar Bragi í miklu stuði eftir ráð pabba og skrefi frá titlinum Verður Aron þjálfari FH? Göppingen vann Einar án Ýmis Elín Klara sænskur meistari Haukur kom að tíu mörkum en meistararnir fögnuðu sigri Nýjasti titillinn í næstmestu uppáhaldi hjá Gísla Góður sigur en erfitt að ná Meistaradeildarsæti Rúnar sigraði á móti sínum gömlu íslensku lærisveinum Sjá meira