Tveir fluttir á bráðadeild eftir rafskútuslys Vésteinn Örn Pétursson skrifar 12. júlí 2021 06:33 Samkvæmt dagbók lögreglu voru tveir fluttir á bráðamóttöku eftir að hafa dottið af rafskútu á borð við þessar. Vísir/Aníta Rétt upp úr miðnætti í nótt barst lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu tilkynning um umferðaróhapp í Hlíðahverfi, þar sem einstaklingur hafði fallið af rafhlaupahjóli, eða rafskútu. Viðkomandi var talinn fótbrotinn og var fluttur á bráðadeild til skoðunar.
Þetta kemur fram í dagbók lögreglu. Þar er einnig getið um annað umferðaróhapp tengt slíkum tækjum. Það átti sér stað í miðbæ Reykjavíkur á þriðja tímanum í nótt, þar sem annar einstaklingur hafði fallið af hjóli sínu. Viðkomandi var fluttur á bráðadeild til skoðunar, en ekki kemur fram af hvaða toga áverkar viðkomandi voru eða hvort þeir voru alvarlegir. Á níunda tímanum í gærkvöldi brást lögregla þá við tilkynningu vegna ölvaðs viðskiptavinar veitingastaðar í miðbæ Reykjavíkur sem neitaði að yfirgefa staðinn og er sagður hafa haft í hótunum við starfsfólk staðarins. Klukkan hálf ellefu óskuðu sjúkraflutningamenn þá eftir aðstoð lögreglu í Hlíðahverfi. Þeir eru sagðir hafa verið að sinna einstaklingi sem veittist að þeim meðan verið var að aðstoða hann. Þá var óskað eftir aðstoð lögreglu í Mosfellsbæ rétt fyrir klukkan tvö í nótt vegna umferðaróhapps. Þar ku bifreið hafa verið ekið á sauðfé. Samkvæmt dagbók hafði lögregla afskipti af tveimur ökumönnum í nótt sem grunaðir voru um akstur undir áhrifum fíkniefna og/eða áfengis.
Lögreglumál Reykjavík Rafhlaupahjól Mest lesið Eins og að vera staddur í martröð og geta ekki vaknað Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Jöfnuðu fjölbýlishús við jörðu um miðja nótt Erlent Ætla að opna Bláa lónið 29. nóvember Innlent „RÚV er sá fjölmiðill sem er líklega einna lengst til vinstri á Íslandi“ Innlent Hlutverk flokksforingja stórlega ofmetið í kosningabaráttunni Innlent Segist svikin af Viðreisn og segir sig úr flokknum Innlent Stöðugt gos og engir skjálftar Innlent Spennandi og sögulegar kosningar: Fjórir flokkar berjast fyrir lífi sínu í fallbaráttu Innlent Kennarasambandið sýni kennurum „alvarlega lítilsvirðingu“ Innlent Fleiri fréttir Kennarasambandið sýni kennurum „alvarlega lítilsvirðingu“ Spennandi og sögulegar kosningar: Fjórir flokkar berjast fyrir lífi sínu í fallbaráttu „Dapurlegt“ útspil kennara og opnun Bláa lónsins Sigmundur fjarverandi allar atkvæðagreiðslur Styrkja möstrin með möl eftir góða vinnu í nótt Eins og að vera staddur í martröð og geta ekki vaknað Hlutverk flokksforingja stórlega ofmetið í kosningabaráttunni Braut rúðu í lögreglubíl Stöðugt gos og engir skjálftar „RÚV er sá fjölmiðill sem er líklega einna lengst til vinstri á Íslandi“ Ætla að opna Bláa lónið 29. nóvember Rafmagnsmastur í hættu vegna hraunflæðis Segist svikin af Viðreisn og segir sig úr flokknum Tilbúin að aflýsa verkföllum í fjórum leikskólum Hörð viðbrögð við vaxtahækkunum Boða verkföll í tíu leikskólum í desember Í beinni frá gosstöðvum, undrun á vegferð seðlabankans og lokasprettur Atburðarás gærdagsins í myndum Eldri maður á gamalli Corollu ógnaði ekki lífi hjóna á nýjum Ram Virkni í þremur gígum og mest í miðjunni Mikill meirihluti vill ekki sjá sjókvíaeldi í Seyðisfirði Segir íbúafundinn ekki hafa verið nægilega upplýsandi FA klagar Willum Þór til umboðsmanns Með hundruð kílóa af þýfi heima hjá sér Bílar og byggingariðnaður losar mest í Reykjavík „Allt athafnasvæði Bláa lónsins er innan varnargarða“ Rokk og ról í Rockville holunni frestast fram í janúar Framsókn með þriggja prósenta fylgi í borginni Gist í um tuttugu húsum í Grindavík Njarðvíkuræðin heldur sem stendur og vaxtakjörin útskýrð á mannamáli Sjá meira