Í tilkynningu frá Herra Örlygi, skipuleggjanda viðburðarins, segir að fyrirmyndin sé sótt til bæjarhátíða sem tíðkist víða í Evrópu þar sem fjölbreytt skemmtun fyrir allar kynslóðir fái að njóta sín.
Margir af fremstu tónlistarmönnum þjóðarinnar munu koma fram á hátíðinni. Bubbi, Briet, Frðrik Dór, GDNR, Hipsumhaps, Sigrún Stella og Emmsjé Gauti hafa staðfest komu sína. Ekki er loku fyrir það skotið að fleiri listamenn bætist við hópinn og þá verða leynigestir á hátíðinni.
Matarvagnar frá Reykjavík Streetfood eiga að tryggja fjölbreytt matarúrval og boðað að vanir grillarar sjái um að elda ofan í gesti.
„Lengsti bar á íslandi tryggir öllum ískaldar veigar og loks verður veglegt kampavínstjald þar sem bubblur af öllum stærðum og gerðum verða á
boðstólum,“ segir í tilkynningunni.
Leiktæki og skemmtilegheit verða á staðnum fyrir yngstu gestina. Miðaverð á hátiðina er 3900 krónur fyrir fullorðna, 2000 fyrir yngri en
12 ára og frítt inn fyrir yngri en 6 ára. Aldurstakmark er 18 ára nema í fylgd með fullorðnum en miðasala hefst á Tix þann 19. júlí.