Lífið

Stjörnurnar sem kjósa að nota ekki svitalyktareyði og baða sig sjaldan

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Ósk Gunnars fjallaði um hreinlætisvenjur fræga fólksins í þætti sínum.
Ósk Gunnars fjallaði um hreinlætisvenjur fræga fólksins í þætti sínum. Samsett/FM957-Getty

Hreinlætismál hafa verið mikið í umræðunni í Hollywood síðustu daga. Ósk Gunnarsdóttir fór yfir málið í þætti sínum á FM957.

Ashton Kutcher og Mila Kunis byrjuðu þetta svolítið þar sem þau voru í síðasta mánuði í hlaðvarpi að tala um hreinlæti og hvað þau fara oft í bað og hversu oft þau baða börnin sín, segir Ósk.

Í kjölfarið fóru fleiri stjörnur að tjá sig um sínar baðvenjur. Ósk vitnar meðall annars í Kutcher, sem lét hafa eftir sér:

„Ég þríf mig bara undir höndunum og í klofið daglega, annars aldrei neitt annað. Ég fer aldrei í sturtu.“

Hann sagði einnig að börnin færu bara í bað ef þau væru sjáanlega óhrein, vegna sands eða drullu eða annars.

Ósk tók saman lista yfir þær stjörnur sem eru í sama liði og þessi frægu Hollywood hjón sem fara örsjaldan í sturtu og nota alls ekki svitalyktareyði. Í hópnum eru Jake Gyllenhaal, Julia Roberts, Matthew Mcconaughey, Cameron Diaz, ein Kardashian systirin og fleiri.

Innslagið má heyra í spilaranum hér fyrir neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.