Menning

Höfundur tón­listar Grikkjans Zorba er fallinn frá

Atli Ísleifsson skrifar
Mikis Theodorakis á tónleikum við tröppur Akropólis í Aþenu árið 2001.
Mikis Theodorakis á tónleikum við tröppur Akropólis í Aþenu árið 2001. EPA

Gríska tónskálið Mikis Theodorakis, sem þekktastur er fyrir að hafa tónlist myndarinnar Grikkjans Zorba frá árinu 1964, er látið, 96 ára að aldri.

Grískir fjölmiðlar segja hann hafa andast í Aþenu í gær. Theodorakis naut mikillar virðingar og vinsælda í heimalandinu og er búið að lýsa yfir þriggja daga þjóðarsorg í landinu vegna fráfalls hans.

Theodorakis var virkur í andspyrnuhreyfingunni gegn hersetu nasista í Grikklandi á tímum seinna stríðs og átti síðar eftir að starfa sem þingmaður. Hann var sömuleiðis einn mest áberandi andstæðingur herforingjastjórnarinnar í Grikklandi á árunum 1967 til 1974.

Í sögunni um Grikkjann Zorba var sagt frá enskum höfundi á Krít og hvernig líf hans umturnast þegar hann kynnist hins mannblendna bónda, Alexis Zorba. Kannast flestir við tónana sem spilaðir voru undir þar sem Zorba og enski höfundurinn dansa saman og sjá má að neðan.

Kvikmyndin, sem skartaði leikaranum Anthony Quinn í aðalhlutverki, vann til þriggja Óskarsverðlauna á sínum tíma.

Theodorakis samdi sömuleiðis tónlistina fyrir myndina Serpico frá árinu 1973.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.