Kári ráðinn yfirmaður knattspyrnumála hjá Víkingi og Arnór Borg skrifar undir Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. september 2021 11:30 Kári Árnason og félagar í Víkingi eiga enn möguleika á að vinna tvo titla á þessu tímabili. Vísir/Hulda Margrét Landsliðsmiðvörðurinn Kári Árnason er að kveðja knattspyrnulið Víkinga eftir tímabilið en hann er alls ekki að hætta að þjónusta Fossvogsliðið.
Samkvæmt áreiðanlegum heimildum Vísis þá hefur Kári Árnason verið ráðinn yfirmaður knattspyrnumála hjá Víkingi og þá mun Arnór Borg Guðjohnsen skrifa undir leikmannasamning við Víking á blaðamannafundi í hádeginu. Báðir verða tilkynntir á þessum fundi. Arnór Borg er að renna út á samningi hjá Fylki en hann getur ekki klárað tímabilið vegna nárameiðsla. Kári Árnason er einn af bestu sonum Víkings en hann fór snemma út í atvinnumennsku en snéri síðan heim í Víkina og hefur spilað með Víkingsliðinu undanfarin þrjú tímabil. Víkingar urðu bikarmeistarar 2019 á hans fyrsta tímabili í endurkomunni en þeir eru í harðri baráttu um Íslandsmeistaratitilinn í ár og komnir í undanúrslit bikarkeppninnar. Kári lék á dögunum sinn nítugasta A-landsleik og var þá með fyrirliðabandið í tíunda sinn. Hann lék sinn fyrsta landsleik fyrir meira en sextán árum síðan. Á fimmtán árum sínum í atvinnumennsku þá spilaði Kári í Svíþjóð, í Danmörku, í Englandi, í Skotlandi, á Kýpur og í Tyrklandi. Kári hefur á þessum tíma öðlast mikla reynslu úr heimi fótboltans og hvernig hlutirnir ganga fyrir sig innan sem utan vallar. Víkingar voru ekki eina félagið sem var á eftir Arnóri Borg en samkvæmt heimildum Vísis þá reyndu Blikar einnig að fá hann til sín. Arnór Borg er 21 árs gamall og hefur skorað 3 mörk í 28 leikjum fyrir Fylki í Pepsi Max deild karla. Í sumar er hann með 1 mark og 1 stoðsendingu í 11 leikjum en hann hefur verið að spila meiddur síðan í apríl og missti mikið úr vegna kviðslits við nára. Arnór fór í aðgerð í London á dögunum og ætti að geta verið kominn aftur af stað eftir mánuð.
Pepsi Max-deild karla Víkingur Reykjavík Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira