Elvar atkvæðamikill í naumu tapi Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 9. nóvember 2021 20:45 Elvar Már Friðriksson var stigahæstur sinna manna í kvöld. HLN Elvar Már Friðriksson og félagar hans í belgíska liðinu Antwerp Giants tóku á móti Ionikos frá Grikklandi í fimmtu umferð riðlakeppni Euro Cup í körfubolta í kvöld. Elvar skoraði 28 stig er liðið tapaði naumlega, 90-87.
Elvar og félagar byrjuðu leikinn betur og náðu fljótt níu stiga forskoti um miðjan fyrsta leikhluta. Gestirnir í Ionikos snéru leiknum þó sér í vil undir lok leikhlutans, og að honum loknum var staðan 26-22, Ionikos í vil. Svipaða sögu er að segja af öðrum leikhluta. Elvar og félagar náðu yfirhöndinni og komust mest í sjö stiga forskot, en gestirnir í Ionikos skoruðu átta stig gegn einu stigi heimamanna undir lok hálfleiksins og staðan var jöfn þegar gengið var til búningsherbergja, 45-45. Elvar og félagar byrjuðu seinni hálfleikinn af miklum krafti og koruðu 17 stig gegn tveimur stigum gestanna í upphafi þriðja leikhluta. Þa tók við áhlaup gestanna þar sem Grikkirnir skoruðu 16 af seinustu 19 stigum leikhlutans og munurinn því aðeins tvö stig þegar komið var að lokaleikhlutanum, 65-63, Antwerp Giants í vil. Liðin skiptust á að skora í fjórða leikhluta og lítið sem ekkert virtist geta skilið liðin að. Þegar um fimm mínútur voru til leiksloka var all jafnt, 76-76, og æsispennandi lokamínútur framundan. Áfram héldu liðin að skiptast á að skora, en það voru gestirnir í Ionikis sem settu niður seinustu stig leiksins og unnu að lokum nauman þriggja stiga sigur, 90-87. Elvar og félagar sitja í efsta sæti F-riðils með átta stig, einu stigi meira en Ionikis og Sporting CP, en þeir síðarnefndu hafa spilað einum leik minna. Elvar Már skoraði 28 stig fyrir Antwerp Giants og var stigahæsti maður liðsins. Þá tók hann einnig sex fráköst og gaf átta stoðsendingar.
Körfubolti Mest lesið HM í fótbolta: Sameiningaraflið sem sundrar Fótbolti Argentína - Ísland 3-0 | Messi messa vestanhafs Fótbolti Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Handbolti Birkir Már með tvö og Afturelding í undanúrslit í fyrsta skipti Fótbolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Endurfundir Messi og Guðjohnsen Fótbolti Stoltir foreldrar: Gunnlaugur „manifestaði“ birtu eftir erfitt vor Golf Segja dómarann vera með tengsl við „hryðjuverkasamtök“ Fótbolti Risa afrek Gunnlaugs og samanburður við þá bestu áhugaverður Golf Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Enski boltinn Fleiri fréttir Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Sjá meira