Lífið

Steindi og Auddi stigu sporið á Stóra sviðinu

Árni Sæberg skrifar
Steindi dansaði blöndu af pasodoble og tangó ásamt Júlíönu Söru Gunnarsdóttur leikkonu.
Steindi dansaði blöndu af pasodoble og tangó ásamt Júlíönu Söru Gunnarsdóttur leikkonu. Stöð 2

Þátturinn Stóra sviðið er nýr fjölskylduþáttur þar sem skemmtun og afþreying eru í aðalhlutverki.

Steinunn Ólína leggur fyrir þá Auðunn Blöndal og Steinda Jr., fyndnar og fjölbreyttar áskoranir í hverjum þætti.

Áskorun kvöldsins fólst í því að stíga dansspor fyrir framan alþjóð. Þeir félagar eru ekki þekktir fyrir hæfileika sína á dansgólfinu en þeir nutu fulltingis hæfari dansfélaga og varð útkoman í því góð.

Steindi dansaði blöndu af pasodoble og tangó ásamt Júlíönu Söru Gunnarsdóttur leikkonu. Dansparið uppskar mikil fagnaðarlæti úr sal. Dansinn má sjá í spilaranum hér að neðan:

Þau Auddi og Birna María Másdóttir dagskrárgerðarkona fóru hins vegar í allt aðra átt og dönsuðu hip-hop dans með glæsibrag. Dansinn má sjá í spilaranum hér að neðan:






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.