Keflavík endurheimtir Sindra frá ÍA Sindri Sverrisson skrifar 16. nóvember 2021 17:31 Sindri Snær Magnússon er kominn aftur í Keflavíkurtreyjuna. mynd/Keflavík Keflavík hefur fengið góðan liðsstyrk en miðjumaðurinn Sindri Snær Magnússon hefur skrifað undir samning við félagið sem gildir út næstu þrjár leiktíðir.
Sindri snýr þar með aftur til Keflavíkur eftir að hafa leikið þar árin 2014 og 2015. Þessi 29 ára gamli leikmaður fór frá Keflavík til ÍBV en hefur leikið með ÍA síðustu þrjú ár. „Sindri Snær kemur með dýrmæta reynslu inní liðið okkar sem er ungt og mun leika í deild þeirra bestu að ári. Mikils er vænst af Sindra Snæ sem mun styrkja liðið okkar mikið og viljum við bjóða hann hjartanlega velkominn aftur til Keflavíkur og hlökkum til að sjá hann á vellinum!“ segir í tilkynningu Keflvíkinga. ÍA og Keflavík enduðu jöfn að stigum í 9. og 10. sæti Pepsi Max-deildarinnar í sumar, einu stigi frá fallsæti. Liðin mættust í undanúrslitum Mjólkurbikarsins þar sem Sindri og félagar fögnuðu sigri en þeir töpuðu svo gegn Víkingi í úrslitaleiknum. Sindri er uppalinn hjá ÍR í Breiðholti og hafði jafnframt leikið með Breiðabliki og Selfossi áður en hann fór til Keflavíkur í fyrra skiptið, fyrir sumarið 2014.
Keflavík ÍF ÍA Pepsi Max-deild karla Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira