„Herslumuninn vantaði“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 18. nóvember 2021 20:45 Ásmundur Arnarsson ræðir við Öglu Maríu Albertsdóttur. vísir/vilhelm Ásmundur Arnarsson, þjálfari Breiðabliks, sagði að fyrsta markið hefði skipt miklu í leiknum gegn Kharkiv í Meistaradeild Evrópu í kvöld.
Kharkiv komst yfir undir lok fyrri hálfleiks, bætti svo öðru marki við í seinni hálfleik og vann 0-2 sigur. Breiðablik er því áfram með eitt stig í B-riðli. „Þetta er mjög svekkjandi niðurstaða. Það sem við lögðum upp með gekk þokkalega á köflum. Við héldum boltanum miklu betur og stjórnuðum leiknum á köflum,“ sagði Ásmundur á blaðamannafundi eftir leik. „Við sköpuðum hálffæri, möguleika en herslumuninn vantaði. Í fyrri hálfleik voru fínir möguleikar á að skora á þær og ég held að ef við hefðum náð að skora á undan hefðum við séð aðra þróun á leiknum.“ Í fyrri leiknum gegn Kharkiv í síðustu viku voru Blikar megnið af leiknum í vörn og gekk illa að koma sér framar á völlinn. Allt annað var að sjá til Breiðabliks hvað þetta varðar í leik kvöldsins.„Í útileiknum vorum við varfærnari, vorum aftar á vellinum og vildum reyna að sækja hratt. Núna reyndum við að komast framar, pressa hærra, ná betri tökum á boltanum og búa þannig til fleiri færi,“ sagði Ásmundur.„Hvað þetta varðar eru leikirnir eins og svart og hvítt. Það gekk mjög illa að halda boltanum í útileiknum og náðum varla 1-2 sendingum á milli. Það gekk betur núna og við fengum fleiri færi og möguleika. En niðurstaðan er mjög svekkjandi.“
Meistaradeild Evrópu í fótbolta kvenna Breiðablik Mest lesið Spiluðu deildina hundrað þúsund sinnum og reiknuðu sigurlíkur liðanna Handbolti Ótrúleg endurkoma Feyenoord í Manchester Fótbolti „Við erum brothættir“ Fótbolti Lewandowski sá þriðji til að skora hundrað Meistaradeildarmörk Fótbolti Tvær tvöfaldar þrennur í sigrum Tindastóls og Þórs Akureyrar Körfubolti „Höfum sýnt að þetta er getustigið sem við getum spilað á“ Fótbolti Uppgjörið: FH - Fenix Toulouse 25-29 | Tap í síðasta Evrópuleik FH-inga Handbolti „Þessi deild er bara þannig að það er ekkert gefins“ Körfubolti Porto lagði Val í Portúgal Handbolti „Nauðsynlegt fyrir íslensk lið að taka þátt í svona keppni“ Sport Fleiri fréttir „Við erum brothættir“ „Höfum sýnt að þetta er getustigið sem við getum spilað á“ Lewandowski sá þriðji til að skora hundrað Meistaradeildarmörk Atlético skoraði sex Ótrúleg endurkoma Feyenoord í Manchester Skytturnar léku á als oddi Eiður Aron áfram á Ísafirði Hareide þarf að leggjast undir hnífinn Liverpool væri bara í þrettánda sæti án markanna hans Mo Salah Andri Rúnar í Stjörnuna Hvorki Arnar né Freyr heyrt frá KSÍ Kæra framleiðendur Lionel Messi drykkjarins fyrir stuld Arnar betur í stakk búinn en Eyjólfur og Arnar Þór Aðeins Heimir og Lagerbäck með betri árangur á öldinni „Fann brosið mitt á ný“ Hélt hreinu á móti Manchester City ökklabrotinn Hareide segir að þjálfaraferlinum sé lokið Carragher segir Salah vera eigingjarnan Segir fótboltamönnum að halda sig frá McGregor Arnar og Freyr taldir líklegastir til að taka við af Hareide Refirnir skemmtu sér í Köben eftir tapið sem kostaði þjálfarann starfið Elías Rafn hélt hreinu þegar meistararnir jöfnuðu toppliðið að stigum Hræringar í Bestu: Daníel Hafsteins orðaður við Víking og Andri Rúnar í Garðabæ Kveðst frekar vilja íslenskan þjálfara Hamrarnir unnu óvæntan sigur í norðrinu Þríeykið rennur allt út á samning næsta sumar Potter orðaður við Leicester á nýjan leik Hareide hugsaði um heilsuna: „Vildi einbeita sér að því“ Hareide hættur með landsliðið Grindvíkingar þétta raðirnar Sjá meira