Marengstoppar með þristabitum – einfaldlega lostæti! Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 5. desember 2021 12:01 Þristatoppar sem væru fullkomnir fyrir jólabaksturinn. Heiðdís Guðbjörg Gunnarsdóttir Eva Laufey Kjaran matgæðingur og fjölmiðlakona gaf út nýja bók á dögunum, Bakað með Evu. Í næstu viku fer hún svo aftur af stað með nýja þáttaröð af matreiðsluþáttunum Blindur bakstur.
Við fengum Evu til að deila einni uppskrift úr nýju bókinni með lesendum. Þessir eru fullkomnir fyrir jólabaksturinn. „Ég myndi segja að þessar væru í eftirlæti hjá mínum fjölskyldumeðlimum fyrir jólin, þær klárast nánast jafn óðum og ég tek þær út úr ofninum. Hægt er leika sér með súkkulaðitegundir og um að gera að leyfa hugmyndafluginu að njóta sín,“ segir Eva Laufey. „Það sem mestu máli skiptir í þessari uppskrift og líkt og öðrum marengsuppskriftum er að þeyta eggjahvíturnar nógu lengi. Hrærivélin fær aðeins að finna fyrir því en allt er það vel þess virði þegar kakan er komin í munninn.“ Uppskriftin hér fyrir neðan gerir um það bil 30 marengstoppa. Hráefni: 3 eggjahvítur 200 g púðursykur 150 g Þristur súkkulaði, smátt saxað Aðferð: Forhitið ofninn í 140°C (undir og yfirhiti) Þeytið eggjahvítur þar til froða byrjar og myndast, hellið sykrinum smám saman við og þeytið í 5-6 mínútur eða þar til marengsinn er stífþeyttur. Saxið súkkulaðið mjög smátt og blandið varlega saman við stífþeyttu eggjahvíturnar. Mótið toppa með tveimur teskeiðum eða setjið deigið í sprautupoka og sprautið á pappírsklædda ofnplötu. Bakið við 140°C í 20 mínútur. Heiðdís Guðbjörg Gunnarsdóttir
Jól Matur Smákökur Uppskriftir Eva Laufey Marens Mest lesið Minnkaði áfengisneysluna og kílóin fylgdu með Lífið Martraðarkennd nótt með veirunni skæðu Gagnrýni Útkall vegna heimilisofbeldis reyndist vera kynlífslæti Lífið Nálgunarbann á hendur Berry eftir ásakanir um að taka soninn hálstaki Lífið Hvað veistu um... Mean Girls? Lífið Leiðir skilja hjá Hrafnhildi Helgu og Árna Lífið Leikur í myndinni en skilur ekki nokkurn skapaðan hlut Bíó og sjónvarp Eiður auglýsir tyrkneska hárígræðsluklíník Lífið Stöðvaði Skarsgård á leið í kvöldverð með Björk Lífið Matthías Már með krabbamein Lífið