Von á miklum fjölda við útför Fjölnis Jakob Bjarnar skrifar 20. desember 2021 11:39 Útför Fjölnis Geirs fer fram á morgun. Til stóð að Hilmar Örn allsherjargoði myndi stjórna athöfninni en hann er í sóttkví og því hefur Jóhanna Kjalnesingagoð verið kölluð til. vísir Fjölnir Geir Bragason húðflúrlistamaður, sem lést 11. desember, verður kvaddur í Fossvogskirkju á morgun klukkan 13. Óvissuástand er vegna útbreiðslu Covid, sem gæti raskað athöfninni og hefur reyndar þegar sett strik í reikninginn.
Útförin verður að hætti ásatrúarmanna. Til stóð að Hilmar Örn Hilmarsson allsherjargoði myndi annast athöfnina. En hann er kominn í sóttkví og Jóhanna G. Harðardóttir Kjalnesingagoði mun annast útförina. Í þessari tilkynningu um útför Fjölnis Geirs má sjá slóðina hvar útförinni verður streymt. https://youtu.be/M98ky-QMc0U Fjölnir Geir var afar vinamargur og er búist við miklu fjölmenni. Gestir, þeir sem ætla að vera viðstaddir, þurfa að framvísa neikvæðu hraðprófi sem ekki má vera eldra en 48 klukkustunda gamalt við komu. Hvatt er til þess, vegna faraldursins, að fólk fylgist með útförinni í gegnum streymi. Útfarir hafa verið í mikilli óvissu undanfarin tvö ár Rúnar Geirmundsson hjá Útfararþjónustunni er útfararstjóri og hann segir að svo virðist sem fjölmargir ætli að mæta og standa úti en það lítur út fyrir að veður verði ágætt. „Ég heyri það, já. Til að fylla ekki kirkjuna. Svo eru þarna margir sem fara í kirkju. Ég er búinn að ákveða að hafa kirkjuna opna út,“ segir Rúnar í samtali við Vísi. Hann segir að þeir sem úti standa geti svo fylgst með útförinni á símum sínum, í gegnum streymið. Rúnar segir að mikið óvissuástand sé og hafi verið nú í tæp tvö ár. „Ég óttast það mest, hvað Þórólfur gerir núna. Það mættu vera 500 ef allir eru testaðir en það gæti hæglega farið niður í 50 manna fjöldatakmarkanir.“ Feðgarnir Elís og Rúnar Geirmundsson hjá Útfararþjónustunni. Undanfarin tæp tvö ár hafa einkennst af mikilli óvissu sem reynt hefur á þá sem standa að útförum og aðstandendur hinna látnu.útfararþjónustan. Rúnar segir að undanfarin tæp ár hafi reynst afar erfið og það hafi oft á síðustu stundu þurft að breyta athöfnum. Þetta sé mjög skrítinn tími. „Söngvarar detta út á síðustu stundu og aðrir inn. Sálmaskrár sem búið er að prenta hafa riðlast. Eitt sinn var búið að skipuleggja 500 manna jarðarför og veislu sem þurfti að hætta við. Kórarnir eru dottnir út, í mesta lagi kvartett,“ segir Rúnar. Þetta hefur verið afar erfitt fyrir aðstandendur. „Þetta eru endalausar áskoranir. En okkur hefur hinga til tekst að finna einhverja leið og klára þessar jarðarfarir þannig að sómi sé að. Látum þetta fara eins vel og leysum þetta, förum eftir þeim reglum sem okkur eru settar þó þær geti reynst íþyngjandi,“ segir Rúnar. Jón Gnarr, Krummi og fleiri mæta Athygli vekur að útförin fer fram í kirkju en hún er að hætti ásatrúarmanna. Rúnar segir að þær fari gjarnan fram í Fossvogskirkju sem ekki er í eigu þjóðkirkjunnar, sem hefur tekið fyrir að athafnir sem tengjast öðrum trúarsöfnuðum fari fram í sínum kirkjum. En Siðmennt og Ásatrúarmenn noti Fossvogskirkju. Þar til þeir hafa reist hof sitt sem nú er verið að reisa í Öskjuhlíð. Til stendur að Jón Gnarr komi og tali við útförina, tónlistamaðurinn Krummi mæti og einhverjir fleiri, til að kveðja Fjölni Geir hinstu kveðju.
Andlát Trúmál Mest lesið Skógareldur ógnar byggð í Álasundi Erlent Starfsmaður grunaður um kynferðisbrot á leikskóla Innlent Staðfesta andlát Larijani og Soleimani Erlent Gagnheiðargöng verði sáttaleið Austfirðinga Innlent Yfirheyrslur gætu staðið yfir fram á kvöld Innlent Framtíð Foreldrahúss í óvissu: Nær ekki í Ingu Sæland Innlent Geti ekki starfað undir Bandaríkjaforseta með góðri samvisku Erlent Segir ekkert hérað Rússlands öruggt lengur Erlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Stefán Þór leiðir jafnaðarmenn í Fjarðabyggð Innlent Fleiri fréttir Stefán Þór leiðir jafnaðarmenn í Fjarðabyggð Starfsmaður grunaður um kynferðisbrot á leikskóla Gagnheiðargöng verði sáttaleið Austfirðinga Framtíð Foreldrahúss í óvissu: Nær ekki í Ingu Sæland Ákvarða stýrivexti í skugga versnandi verðbólguhorfa Hugsanleg veggjöld á Reykjanesbraut og Suðurlandsvegi: „Þessi áform mega ekki ná fram að ganga“ Ekið á skólarútu Viðskiptavinir hafi fengið fjölda svikapósta Aðlögun að ESB sé þegar hluti af daglegu lífi Komu biluðum báti til bjargar Leita til háskólans fyrir íslenskupróf Mesta kvikusöfnun á milli eldgosa frá upphafi eldgosahrinu Niðurrifið á göngubrúnni hafið Vegagerðin hafnaði tilboði Icelandair í Ísafjarðarflugið Leggur til að atkvæðagreiðslunni verði frestað Alvarlegt að svo ill meðferð á dýrum sé metin refsilaus Þorsteinn tekur við formennsku af Fanneyju Birnu Vilja hætta við Borgarlínu en stórefla strætisvagnakerfið Bein útsending: Ársfundur Samorku Atvinnuhúsnæði á Ísafirði rýmt eftir snjóflóð Kviknaði í kaffibrennsluofni Vaxtaákvörðun framundan og snjóflóðahætta fyrir vestan Um 44 prósent hlynnt forgangsröðun í samgönguáætlun Yfirheyrslur gætu staðið yfir fram á kvöld Árekstur við Suðurlandsbraut „Persónulegir þættir koma hér hvergi nærri“ Fyrri umræðu um þjóðaratkvæði lokið Sjö handteknir í tengslum við meiriháttar líkamsárás Eins og ef einhver myndi hella vatni yfir tölvu Ólafsfjarðarmúla lokað vegna snjóflóðs Sjá meira