Lífið

Bridgerton stjarnan Phoebe Dynevor deilir húðrútínunni með Vogue

Elísabet Hanna Maríudóttir skrifar
phoebe Dynevor leikur Daphne í Bridgerton.
phoebe Dynevor leikur Daphne í Bridgerton. Getty/ Jeff Spicer

Bridgerton stjarnan Phoebe Dynevor deildi húð- og förðunar rútínunni sinni með Vogue á dögunum. Hún segir það hafa verið furðulegt að upplifa vinsældir þáttanna í gegnum samfélagsmiðla í stað raunheimsins.

Bridgerton stjarnan Phoebe Dynevor deildi húð- og förðunar rútínunni sinni með Vogue á dögunum. Hún segir rútínuna vera fyrir þurra húð og fer yfir sína dagsdaglegu förðun. Miðað við athyglina sem húðin hennar fékk á samfélagsmiðlum eftir þættina ætti myndbandið að gleðja marga.

„Ég held að ég hafi verið þrettán ára þegar ég byrjaði að vera með sólarvörn daglega og mér finnst það í alvörunni breyta öllu,“ 

segir hún. Phoebe leggur mikla áherslu á augabrúnirnar sem hún vill hafa þykkar og beinar en hún vitnar í frasann Augabrúnirnar þínar eru systur en ekki tvíburar sem þekktur er í förðunarheiminum.

Regé-Jean Page og Phoebe Dynevor sem leika Daphne og Simon Basset í Bridgerton þáttunum.Getty/ David M. Benett

Hún segir Covid mögulega hafa ýtt undir vinsældir Bridgerton því allir voru heima hjá sér og höfðu tækifæri til þess að horfa á þættina. Henni fannst furðulegt að upplifa vinsældir þáttanna í gegnum samfélagsmiðla en ekki í gegnum raunheiminn þar sem hún var sjálf heima vegna faraldursins.

Myndbandið má sjá í heild sinni hér að neðan.


Tengdar fréttir

58 skrefa rútína Shay Mitchell

Pretty Little Liars leikkonan Shay Mitchell er með yfir 33 milljón fylgjendur á Instagram og er líka vinsæl á TikTok. Hún er mikið fyrir húðvörur, snyrtivörur og heilsu og því margir forvitnir um það hvaða vörur hún notar. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.