Jafnaði félagsmetið í þristum þrátt fyrir að byrja á bekknum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. febrúar 2022 17:30 Luciano Nicolas Massarelli í leik með Þórsliðinu í vetur en hann hefur raðað niður þristunum í síðustu tveimur leikjum. Vísir/Bára Dröfn Einn Þórsari var sjóðandi heitur í Jakanum á Ísafirði í Subway deild karla í körfubolta í gærkvöldi. Íslandsmeistarar Þórs unnu þá öruggan sigur á Vestramönnum. Argentínumaðurinn Luciano Massarelli þurfti bara tæpar 24 mínútur í gærkvöldi til að jafna félagmet Þórs yfir flesta þrista í einum leik í úrvalsdeild karla. Massarelli hitti úr 9 af 11 þriggja stiga skotum sínum og jafnaði þar með met Larry Thomas frá því 28. janúar i fyrra. Thomas skoraði þristana sína í útileik á móti KR og bætti þá rúmlega tveggja ára met Nikolas Tomsick frá því í Smáranum 15. nóvember 2018. Massarelli kom með 29 stig inn af bekknum í gær og hefur þar með komið með 59 stig inn af bekknum í síðustu tveimur leikjum. Massarelli hitti nefnilega úr 6 af 11 þriggja stiga skotum sínum í sigri á Stjörnunni aðeins þremur dögum fyrr. Hann er því með 15 þriggja stiga körfur 22 skotum í síðustu tveimur leikjum sem gerir 68 prósent nýtingu. Það virðist henta Massarelli betur að byrja á bekknum því hann hitti úr 46,2 prósent þriggja stiga skota sinna þegar hann byrjar ekki en bara 29,5 prósent þegar hann er í byrjunarliðinu.
Argentínumaðurinn Luciano Massarelli þurfti bara tæpar 24 mínútur í gærkvöldi til að jafna félagmet Þórs yfir flesta þrista í einum leik í úrvalsdeild karla. Massarelli hitti úr 9 af 11 þriggja stiga skotum sínum og jafnaði þar með met Larry Thomas frá því 28. janúar i fyrra. Thomas skoraði þristana sína í útileik á móti KR og bætti þá rúmlega tveggja ára met Nikolas Tomsick frá því í Smáranum 15. nóvember 2018. Massarelli kom með 29 stig inn af bekknum í gær og hefur þar með komið með 59 stig inn af bekknum í síðustu tveimur leikjum. Massarelli hitti nefnilega úr 6 af 11 þriggja stiga skotum sínum í sigri á Stjörnunni aðeins þremur dögum fyrr. Hann er því með 15 þriggja stiga körfur 22 skotum í síðustu tveimur leikjum sem gerir 68 prósent nýtingu. Það virðist henta Massarelli betur að byrja á bekknum því hann hitti úr 46,2 prósent þriggja stiga skota sinna þegar hann byrjar ekki en bara 29,5 prósent þegar hann er í byrjunarliðinu. Flestar þriggja stiga körfur í einum leik með Þór Þorl. í úrvalsdeild karla: 9 - Luciano Massarelli á móti Vestra 31. janúar 2022 9 - Larry Thomas á móti KR 28. janúar 2021 8 - Nikolas Tomsick á móti Breiðabliki 15. nóvember 2018 8 - Larry Thomas á móti Haukum 5. mars 2021
Flestar þriggja stiga körfur í einum leik með Þór Þorl. í úrvalsdeild karla: 9 - Luciano Massarelli á móti Vestra 31. janúar 2022 9 - Larry Thomas á móti KR 28. janúar 2021 8 - Nikolas Tomsick á móti Breiðabliki 15. nóvember 2018 8 - Larry Thomas á móti Haukum 5. mars 2021
Subway-deild karla Þór Þorlákshöfn Mest lesið Þema í tapleikjum Liverpool á þessu ári Enski boltinn Þorsteinn Leó með sigurmark á lokasekúndunum Handbolti Efins um að ráða Carrick til frambúðar: „Maður er brenndur af fyrri tíð“ Enski boltinn „Ég held ég sé komin með nóg af karlmönnum í bili“ Sport Mark í uppbótartíma tryggði botnliðinu sigur gegn Liverpool Enski boltinn Börsungar úr leik þrátt fyrir öruggan sigur í kvöld Fótbolti Mark í framlengingu framlengir bikarævintýri Port Vale Enski boltinn Keypti Cucurella af því að Man City vildi hann Enski boltinn Tapaði hlaupinu af því að forystubíllinn lét hana hlaupa kolranga leið Sport Segir Almari og félögum sýnd hræðileg vanvirðing Körfubolti Fleiri fréttir Segir Almari og félögum sýnd hræðileg vanvirðing Ísland enn eina liðið sem hefur unnið Ítalíu Uppgjörið: Litáen - Ísland 99-82 | Hefndu sín á strákunum okkar Toppliðið í Litaén hjálpar landsliðinu gegn Íslandi Helena ekki lengur ein í þrjátíu stiga þrennuhópnum Særðir og í hefndarhug: „Erum að fara í alvöru skrímsli“ Segir að sigurkarfa Elvars hafi verið ólögleg „Við fórum bara og fundum aðrar lausnir“ Gríðarjafn pakki eftir grindvískan sigur Uppgjörið: Valur - Haukar 59-85 | Öruggt hjá Haukum að Hlíðarenda Í landsliðið því lítill ættingi er á leiðinni Tilþrif Elvars þau bestu í heimi á föstudaginn Með 52 stig í þríframlengdum botnslag Í öngum sínum eftir tapið á Íslandi: „Eitt neyðarlegasta tap í sögu þjóðarinnar“ Magnaðar myndir frá endurkomu aldarinnar Utan vallar: Himnafaðirinn, Jordan og kvöldið hans Elvars Sjáðu sigurkörfuna: „Elvar Friðriksson, ertu ekki að grínast“ „Þetta var eins og Guð sjálfur væri mættur á völlinn“ Uppgjör: Ísland - Litáen 86-85 | Elvar tryggði sigurinn á ögurstundu Fyrsti sigur Íslands á Litháen í 34 ár Elvar Már: „Þetta eru þvílíkir naglar“ Ítalir fóru illa með Bretana Í toppstandi þrátt fyrir að úða í sig pasta á Ítalíu Á íslenska konu og barn en mætir Íslandi í kvöld Komst norður í snjó, búskap og dorg: „Dásamlegt“ Heim í hlýjuna en alls ekki á heimleið Chris Bosh vaknaði í eigin blóðpolli: „Glaður að vera á lífi“ Almar og félagar með augu allra á sér annað kvöld Skorti orku og ástríðu Orri með slitið krossband og þarf í aðgerð Sjá meira