Lífið

„Fann mitt fyrsta gráa hár þegar ég var átján ára gömul“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Róbert og Sigurveig eru bæði stolt af sínu gráu hárum.
Róbert og Sigurveig eru bæði stolt af sínu gráu hárum.

Það vakti athygli nýlega þegar Sarah Jessica Parker úr Sex And The City þáttunum var gagnrýnd opinberlega þegar hún sýndi sig á almannafæri með nokkur af sínum náttúrulegu gráu hárum.

Sarah Jessica svaraði þessari gagnrýni meðal annars í Vogue. Þónokkrar heimsþekktar konur láta gráu hárin njóta sín og hér á landi eru nokkrar flottar ungar konur sem eru ófeimnar við að sýna gráu hárin. Vala Matt fór í leiðangur fyrir Ísland í dag og skoðaði málið.

Í innslaginu skellti Vala sér á hárgreiðslustöðina Rauðhetta og Úlfurinn í Borgartúninu og ræddi þar við Sigurveigu Grétarsdóttur og hárgreiðslumanninn Róbert sem leyfa bæði gráu hárunum að njóta sín.

„Ég fann mitt fyrsta gráa hár þegar ég var átján ára gömul og byrjaði fyrst að fela þau því það var normið. Síðan fyrir um tíu árum síðan sá ég í hvað stefndi, þar sem ég var að verða ansi grá og það er ákveðin binding að lita sig í hverjum einasta mánuði svo maður sé ekki með rót. Ég tók þá ákvörðun að hætta að lita mig í rótina,“ segir Sigurveig.

„Mín kynslóð leyfir alveg sínu gráu hárum að koma fram sko og það eru alltaf að verða fleiri og fleiri stelpur með gráu hárin. Núna er það að verða ásættanlegt að konur sýni gráu hárin sín og bara yngri og yngri,“ segir hárgreiðslumaðurinn Robert Michael O´Neill sem starfar á Rauðhettu og Úlfinum.

„Svo er hægt að blanda strípum við gráu hárin svo það verði ekki of flatt.“

Hér að neðan má sjá innslagið í heild sinni.


Tengdar fréttir

Brúðkaupsskór Hildar Björnsdóttur og Carrie Bradshaw fengu nýtt hlutverk

Hildur Björnsdóttir borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins var gestur í þáttunum Heimsókn hjá Sindra Sindrasyni á dögunum þar sem hann heimsótti heimili hennar í Vesturbænum og kíkti í fataskápinn. Á heimilinu býr hún ásamt eiginmanni sínum Jóni Skaftasyni og þremur börnum þeirra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.