Andrés vill 2. sæti á lista VG í borginni Atli Ísleifsson skrifar 8. febrúar 2022 07:29 Andrés Skúlason. Aðsend Andrés Skúlason hefur ákveðið að gefa kost á sér í 2. sæti í forvali Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs fyrir komandi borgarstjórnarkosningar þann 14. maí.
Í tilkynningu frá Andrési segir að hann hafi tekið virkan þátt í starfi hreyfingarinnar allt frá stofnun hennar árið 1999 og gengt margvíslegum trúnaðarstörfum á þeim vettvangi. Hafi hann meðal annars átt sæti í stjórn Vinstri grænna síðustu fimm ár. Þá segir að hann hafi umtalsverða reynslu af sveitarstjórnarmálum og setið í meirihluta í sveitarstjórn Djúpavogshrepps í samfellt sextán ár og þar af lengst af sem oddviti. „Á þeim tíma öðlaðist ég dýrmæta reynslu og innsýn í stjórnsýsluna á breiðum grunni ekki síst í samskiptum við ríkisvaldið og fjölmargar undirstofnanir þess sem hefur veitt mér haldgóða sýn á stjórnkerfið í stóru myndinni. Þá hef ég gengt fjölmörgum öðrum trúnaðarstörfum í stjórnum nefndum og ráðum bæði á vettvangi sveitarfélaga og innan stofnanna ríkisins.Í dag á ég m.a. sæti í stjórn ÍSOR og þá einnig gegni ég stöðu formanns Fornminjanefndar þar sem ég hef brennandi áhuga á minjaverndarmálum og hef komið að mörgum slíkum verkefnum á liðnum árum. Ég vinn einnig í hlutastarfi hjá Landvernd þar sem ég á sömuleiðis kost á að sameina áhugamál mál mín og vinnu sem lúta að umhverfis- og náttúruvernd sem eru mér mikið hjartans mál. Að öðru leyti hef ég unnið við mörg og fjölbreytt störf um ævina ásamt virkri þátttöku í félagsmálum meðal annars er varðar ungmenna- og íþróttastarf. Ég tel mig vera á besta aldri og hef gaman að takast á við nýjar áskoranir sem eru til þess fallnar að bæta samfélagið. Ég er fæddur 1963, giftur og á þrjú uppkomin börn og 7 barnabörn, ég flutti alfarið búferlum til Reykjavíkur árið 2019 þar sem fjölskyldan býr öll í dag. Ég bý í Úlfarsárdal þar sem ég kann afar vel við mig í nálægð við náttúruna sem ég nýt þess að upplifa þegar ég á þess kost. Áhugamálin eru mörg en fyrir utan vinnuna sjálfa hverju sinni, þá eru það útivist - náttúruupplifun ásamt ljósmyndun sem eiga minn hug þegar ég á lausar stundir. Helstu baráttumál mín ef mér yrði veitt brautargengi á þessum vettvangi snúa helst að umhverfis- og skipulagsmálum í borginni og þar er af mörgu að taka, en skipulagsmálin snerta að því er má segja alla innviði samfélagsins og framtíðarsýn. Þá vil ég vinna að því að búa þeim sem höllustum fæti standa í samfélaginu, fleiri tækifæri og betri lífsgæði með bættri þjónustu sem borginni ber að veita. Ég vil að börnum verði tryggð aðkoma að félags- og íþróttastarfi óháð efnahag og að sama skapi verði bætt þjónusta við aldraða sem er sífellt stækkandi hópur sem þarf að hlúa betur að. Það hefur margt gott verið gert í borginni á liðnum árum en Reykjavík er hinsvegar ekkert öðruvísi en aðrar borgir að því leyti að það eru uppi stórar áskoranir á hverjum tíma og eitt af þeim viðvarandi verkefnum sem við er að glíma er hvernig á að mæta þeim miklu áskorunum er varðar húsnæðismálin. Þar vil ég eins og efalaust allir sjá fasteignir á viðráðanlegu verði og yngra fjölskyldufólki verði veitt sérstök athygli í þeim efnum. Þrátt fyrir að unnið verði áfram að þéttingu byggðar í miðborginni þarf jafnhliða að vinna að heildstæðari og umfram allt fjölbreyttari lausnum í húsnæðismálum. Í þeim efnum vil ég setja fram stefnu um að skipuleggja í auknum mæli enn frekari íbúðabyggð og uppbyggingu á jaðarsvæðum borgarinnar þar sem brýn þörf er á að styrkja enn betur innviði í einstökum hverfum þannig að betra jafnvægi náist á milli einstakra borgarhluta og til þess þarf að styrkja enn frekar innviði hverfa og þá um leið mun slík ráðstöfun draga verulega út umferð á milli borgarhluta. Mikilvægur þáttur í þessum efnum er að styrkja enn frekar í sessi íbúalýðræði með virkum hverfisráðum þar sem íbúarnir sjálfir fái aukið vægi við ákvarðanatöku um framtíðarþróun byggðarinnar, að íbúarnir sjálfir hafi meiri aðkomu og þátttökurétt í að móta nærumhverfi sitt. Stefnumörkun til 2040 í aðalskipulagi Reykjavíkurborgar eins og það liggur fyrir markast ekki að nógu og metnaðarfullri framtíðarsýn um markvissa uppbyggingu í jaðarbyggðum borgarinnar, eftirspurnin og tækifærin eru hinsvegar þar til staðar og því þarf að mæta. Síðast en ekki síst á Reykjavíkurborg stórkostleg og ónýtt tækifæri í að bæta lýðheilsu borgarbúa sem er einn af lykilþáttum þess að bæta samfélagið eftir Covid 19 faraldurinn. Í þessum efnum vil ég sjá stórátak í að bæta útivistarsvæði í borginni og þá ekki síst í jaðri borgarinnar sem eru reyndar þegar mjög fjölsótt en ekki skipulögð til útivistar sbr. Úlfarsfellið og fleiri sambærileg og frábær útivisarsvæði. Í þessum atriðum er að stórauka upplifun með góðu skipulagi og bættu aðgengi. Þessi mál og fjölmörg fleiri brýn sem verða tíunduð síðar eru borgarmálefni sem undirritaður befur brennandi áhuga á að beita sér fyrir til að gera góða borg enn betri,“ segir í tilkynningunni frá Andrési.
Reykjavík Borgarstjórn Sveitarstjórnarkosningar 2022 Vinstri græn Mest lesið Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Innlent Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Innlent Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Innlent Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Innlent „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Innlent „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Innlent Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Innlent Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent Repúblikanar vinna orrustu í kjördæmastríðinu Erlent Fleiri fréttir Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Boða fjölgun flugferða á sama tíma og bátsferðir voru felldar niður Pílagrímaflug Air Atlanta á fullri ferð þrátt fyrir átök Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Hnífstunga í heimahúsi í Árbæ Kvöddu þjóðargersemi með sögum og söng Fróaði sér úti og var gripinn með teiknað barnaníðsefni Sjá meira