Viktor og félagar enn taplausir á toppnum | Sandra fór á kostum í sigri Álaborgar Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 12. febrúar 2022 16:52 Viktor Gísli Hallgrímsson og félagar hans í GOG eru enn taplausir á toppi dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta. EPA-EFE/Anne-Christine Poujoulat Íslendingar voru í eldlínunni í fjórum leikjum danska handboltans í dag, bæði karla- og kvennamegin. Viktor Gísli Hallgrímsson og félagar hans í GOG eru enn taplausir á toppi dönsku úrvalsdeildarinnar eftir eins marks sigur gegn Bjerringbro/Silkeborg og Sandra Erlingsdóttir skoraði níu mörk í stórsigri Álaborgar.
Viktor Gísli og félagar lentu undir í fyrri hálfleik gegn heimamönnum í Bjerringbro/Silkeborg, en þegar flautað var til hálfleiks var staðan 17-15, heimamönnum í vil. Þeir snéru þó taflinu við í síðari hálfleik og unnu að lokum góðan eins marks sigur, 30-29. Eins og oft áður á tímabilinu fékk Viktor Gísli fáar mínútur í markinu, en liðið er enn á toppi deildarinnar með 39 stig af 40 mögulegum eftir 20 leiki. Þá var Arnór Atlason, aðstoðarþjálfari Álaborgar, á sínum stað á hliðarlínunni þegar liðið vann öruggan sjö marka sigur gegn Nordsjælland, 32-25. Aron Pálmarsson er enn fjarri góðu gamni vegna meiðsla. Álaborg situr í öðru sæti deildarinnar með 33 stig eftir 21 leik, sex stigum á eftir toppliðinu. Í úrvalsdeild kvenna unnu Elín Jóna Þorsteinsdóttir og stöllur hennar nauman eins marks útisigur gegn Randers, 25-26, í leik þar sem Elín Jóna varði ellefu skot af þeim 34 sem hún fékk á sig. Að lokum var Sandra Erlingsdóttir markahæsti leikmaður vallarins með níu mörk í 13 marka stórsigri Álaborgar gegn Lyngby, 32-19.
Danski handboltinn Mest lesið Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust Körfubolti Tekur meira á fjölskylduna en hann sjálfan Íslenski boltinn Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ Íslenski boltinn Iraola kynntur til leiks hjá Liverpool Enski boltinn Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Körfubolti Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Handbolti Felldu og afklæddu styttur af fótboltamönnum Sport Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Enski boltinn Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Enski boltinn Sara Björk snýr heim í Hauka Íslenski boltinn Fleiri fréttir Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sigursteinn barðist við tárin Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Hákon Daði til Aftureldingar Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn FH-ingar boða til blaðamannafundar Sjá meira