Damir skilaði sér of seint heim á hótel og fékk ekki að spila Sindri Sverrisson skrifar 14. febrúar 2022 12:30 Damir Muminovic segir að leikirnir í Portúgal muni gagnast Blikum í sumar. Hann fékk þó ekki sjálfur að spila þá alla. Hafliði Breiðfjörð Damir Muminovic, miðvörðurinn sterki í knattspyrnuliði Breiðabliks, fékk ekki að taka þátt í þriðja og síðasta leik liðsins á Atlantic Cup æfingamótinu á Algarve í Portúgal.
Damir greindi frá því í viðtali við Blikar TV að hann hefði gerst sekur um brot á reglum þegar hann skilaði sér of seint heim á hótel. Hann lék því ekki í 4-3 tapinu gegn FC Kaupmannahöfn á föstudaginn. Hann hafði áður spilað í 2-1 sigrinum gegn B-liði enska úrvalsdeildarfélagsins Brentford og í sigrinum gegn danska stórliðinu Midtjylland, þar sem úrslitin réðust í vítaspyrnukeppni eftir 3-3 jafntefli. „Svo hefði maður auðvitað vilja spila þriðja leikinn líka en ég var kominn aðeins seint heim á frídegi og tek fulla ábyrgð á því, og bara áfram gakk,“ sagði Damir við Blikar TV en viðtalið má sjá hér að neðan. Blikar hefja keppni í deildabikarnum, eða Lengjubikarnum, 25. febrúar með leik við ÍA. Fyrsti leikur þeirra á Íslandsmótinu er gegn Keflavík 19. apríl en í nógu verður að snúast fyrir Blika í sumar þar sem þeir leika einnig í Evrópukeppni, og Damir segir ferðina til Portúgals koma til með að nýtast liðinu vel: „Ég held það. Maður er að fá alvöru leiki á þessu móti og þegar maður kemur svo heim er farið að styttast í mót. Þá byrjar alvaran á fullu. Ég held að þetta hjálpi okkur heilmikið.“
Pepsi Max-deild karla Breiðablik Mest lesið Bein útsending frá Reykjavíkurmaraþoninu Sport Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur Enski boltinn United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Enski boltinn DocZone snýr aftur Enski boltinn „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ Íslenski boltinn „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Íslenski boltinn Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti Strákarnir réðu ekki við Finnana Körfubolti Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Enski boltinn „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Kærkomið að fá eitt svona mark“ „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Sjáðu Eið Smára stýra sinni fyrstu æfingu með KA Uppgjörið: FH - Víkingur R 0-1 | Magnaður sigur Víkinga Uppgjörið: Þór/KA - Valur 0-1| Valskonur úr fallsæti Uppgjörið: ÍBV - Þróttur 1-2 | Ekki góð endurkoma BBC birtir innslag um sögulegt einvígi KR og Liverpool Strippaði á Kópavogsvelli fyrir Bestu deildina Sjáðu mörkin: Útsendari FH refsaði toppliðinu og Ása Björg með sýningu „Hún fær fullt frelsi til að fara í öll skógarhlaup sem henni dettur í hug“ „Til skammar á Bestu deildar stigi að vökva ekki völlinn“ Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - Fram 4-0 | Unnu Fram í þriðja sinn í sumar Uppgjörið: Stjarnan - Breiðablik 2-0 | Garðabærinn með hreðjatak á Kópavogi Aðalþjálfarar KFG stýra Stjörnunni út tímabilið „Erum peppaðir í að spila þennan leik“ Stjarnan rak þjálfarann í annað sinn í sumar Eiður Smári þjálfar KA Mögnuð þrenna Köru í Keflavík Kara með þrennu fyrir KR og Tindastóll fallið Hvetur fólk til að sjá „skemmtilegasta Keflavíkurlið í mörg ár“ Botnar ekkert í Brazell: „Alltaf er hann svo sáttur með allt“ Kveðja Bjarna með miklum söknuði „Hvaða grín er þetta með Gylfa Sig?“ Sjáðu mörkin: Methafinn nýtti löngu köstin og Róbert elskar að mæta Stjörnunni Þróttur situr á toppi Lengjudeildarinnar Ægir fallið og ólíkir leikir í Lengjudeildinni Uppgjörið: Valur - KA 4-4 | Bæði lið hæfilega sátt eftir markasúpu Uppgjörið: Fram - Stjarnan 3-1 | Framarar nálgast annað sætið Sjóðheit Ída Marín kveður FH Sjá meira