Tónlist

Tuttugu prósent af: Reykjavíkurdætur sömdu nýja útgáfu af Söngvakeppnis laginu í gegnum Twitter þráð

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Reykjavíkurdætur komust áfram í undankeppni Söngvakeppninnar síðasta laugardag. Þær fara á svið næstkomandi laugardag með lagið Turn This Around. 
Reykjavíkurdætur komust áfram í undankeppni Söngvakeppninnar síðasta laugardag. Þær fara á svið næstkomandi laugardag með lagið Turn This Around.  Instagram @daughtersofreykjavik

Flestir kannast við að ruglast stundum á lagatextum og syngja jafnvel vitlausan texta í langan tíma án þess að átta sig á því. Twitter notandinn Stefán Snær birti færslu á miðlinum um helgina þar sem hann heyrir Reykjavíkurdætur syngja hátt og snjallt „Tuttugu prósent af“ í Söngvakeppnis ​laginu „Tökum af stað“.

Umræddi textinn er vissulega Tökum af stað en blaðamaður skilur þó misskilninginn vel þar sem þessar setningar hljóma furðulega mikið eins. Reykjavíkurdætur voru fljótar að bregðast við og skelltu í glænýja útgáfu af laginu. Hér má heyra smá bút úr þessum glænýja og hnyttna texta:

„20% af. Það er sko mega útsala í dag. Já við förum beint í Kringluna og setjum allt í körfuna og tökum svo 20% aaaaf.“

Reykjavíkurdætur keppa í úrslitum Söngvakeppninnar næsta laugardag en þá kemur í ljós hver verður fulltrúi Íslendinga í Eurovision í vor. Enska útgáfa lagsins heitir Turn This Around en blaðamaður hefur áreiðanlegar heimildir fyrir því að þar verði ekkert talað um 20% afslátt.


Tengdar fréttir

Katla og Reykjavíkurdætur áfram í Söngvakeppninni

Reykjavíkurdætur og Katla hafa tryggt sér sæti í úrslitum Söngvakeppninnar en seinni undankeppnin fór fram á RÚV í kvöld. Þá var laginu Don´t you know með Má og Ísold bætt við sem aukalagi í úrslitum.

Sól Hansdóttir er fatahönnuður Reykjavíkurdætra: Kvenkyns erkitýpur fá að skína

Listakonan og fatahönnuðurinn Sól Hansdóttir er með mörg járn í eldinum og býr yfir mikilli sköpunargleði. Hennar nýjasta verkefni er að hanna fötin sem Reykjavíkurdætur klæðast í Söngvakeppninni en Sól er þekkt fyrir frumlega hönnun sem vekur athygli út fyrir landsteina. Blaðamaður heyrði í Sól og fékk að heyra nánar frá hennar listræna ferli.

Frumsýning á tónlistarmyndbandi Reykjavíkurdætra fyrir Söngvakeppnina

Reykjavíkurdætur eru meðal keppenda í undankeppni Eurovision í ár en næsta laugardag stíga þær á svið í seinna holli. Lífið á Vísi frumsýnir hér tónlistarmyndbandið við framlag þeirra í ár en lagið ber nafnið Turn This Around í ensku útgáfunni.

Þetta eru lögin sem keppa í Söngva­keppninni 2022

Tíu lög hafa verið valin til þátttöku í Söngvakeppninni 2022. Fimm lög keppa á fyrra undanúrslitakvöldinu laugardaginn 26. febrúar og restin viku síðar í seinni undanúrslitum þann 5. mars.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.