Gerrard segir Saka að hætta að væla: „Þetta er ekki íþrótt án snertinga“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 21. mars 2022 07:32 Bukayo Saka fannst leikmenn Aston Villa sparka full mikið í sig. afp/Nick Potts Steven Gerrard, knattspyrnustjóri Aston Villa, gaf lítið fyrir umkvartanir Bukayos Saka, leikmanns Arsenal, um að Villa-menn hefðu verið grófir í leik liðanna á laugardaginn.
Saka skoraði eina mark leiksins í fyrri hálfleik. Eftir leik sagðist hann hafa beðið dómarann Andy Madley um meiri vernd þegar leikmenn Villa spörkuðu í hann. Gerrard fannst ekki mikið til þessara ummæla Sakas koma. „Sagði hann að við værum of harðir? Brutu þeir aldrei af sér? Þetta er hluti af leiknum,“ sagði Gerrard. „Síðast þegar ég kannaði er þetta ekki íþrótt án snertinga. Tæklingar eru leyfðar, harka er leyfð. Saka er góður leikmaður. Ég elska hann. En hann getur ekki kvartað yfir þessu. Þetta er fótbolti.“ Gerrard kallaði ekki allt ömmu sína sem leikmaður og sagði að Saka yrði einfaldlega að venjast hörkunni í enska boltanum. „Ég sit hérna með skrúfur í mjöðminni. Ég hef farið í um sextán aðgerðir. Ég á erfitt með að fara í ræktina. Allt út af því að hafa unnið fyrir mér í enska boltanum. Hann lærir og það fljótt,“ sagði Gerrard.
Enski boltinn Mest lesið Vinicius hefur gjörbreyst eftir lýtaaðgerð Fótbolti Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Íslenski boltinn „Kannski ekki besta umhverfið eins og staðan var“ Íslenski boltinn Vill afsögn Infantino: „Veit ekki hvort þögnin eða meðsektin er verri“ Fótbolti Stoðsendingakóngur HM sakaður um ógreitt meðlag Fótbolti Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Fótbolti Heimsleikarnir í beinni: Fyrstu skref Bergrósar á stærsta sviðinu Sport Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Enski boltinn „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Handbolti Liðalaus Stones eftirsóttur Fótbolti Fleiri fréttir „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Sjá meira