Innblásturinn er fastur liður hjá Lífinu á Vísi þar sem rætt er við ólíkt fólk um hvað veitir því innblástur í tilverunni og hvaða ráðum þau luma á varðandi andlega heilsu.
Hver ert þú í þínum eigin orðum?
Góð spurning!
Hvað veitir þér innblástur?
Allt milli himins og jarðar þegar ég leyfi mér að sjá hlutina í réttu ljósi.
Hvað er þitt besta ráð til að næra andlega heilsu?
Taka sér smá pásu frá öllum dagsdaglegu látunum, frí frá samfélagsmiðlum og vinnu og eyða tíma með fólkinu sem manni þykir vænt um.
Hvernig er hefðbundinn dagur í þínu lífi?
Það eru fáir hefðbundnir dagar hjá mér þar sem dagarnir eru margir svo mismunandi.
En þessa dagana finnst mér best að slaka vel á á kvöldin og horfa á góða þætti og bíómyndir.
Uppáhalds lag og af hverju?
Dreams með Fleetwood Mac. Það hefur verið uppáhalds lagið mitt í mörg ár.
Það snerti eitthvað í mér við fyrstu hlustun sem hefur alltaf verið með mér síðan.
Uppáhalds matur og af hverju?
Þessa dagana er plokkfiskur helsta óléttucrave-ið.
Hvað er besta ráð sem þú hefur fengið?
Það eina sem mér dettur í hug er bútur úr laginu Geðveikt fínn gaur þegar það er sungið „..ef þú hleypir lofti á milli er það ekkert mál“ þegar maður nær ekki að opna lokið á krukkum.
Hvað er það skemmtilegasta við lífið?
Að hlakka til framtíðarinnar en vera hamingjusöm í núinu.