Lífið

Veita börnum og ungmennum öryggi með skýrum ramma og einstaklingsmiðaðri þjónustu

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Sigríður Hlíf Valdimarsdóttir er gestur í nýjasta þættinum af Spjallið með Góðvild.
Sigríður Hlíf Valdimarsdóttir er gestur í nýjasta þættinum af Spjallið með Góðvild. Mission framleiðsla

„Í rauninni snýst þetta um að lesa í hegðun barnsins, setja hegðunina í merkingarbært samhengi, til að geta mætt barninu og þörfum þess,“ segir Sigríður Hlíf Valdimarsdóttir forstöðumaður hjá Klettabæ. Í úrræðinu er unnið eftir áfalla- og tengslamiðuðum stuðningi.

„Við erum með ramma sem veitir barninu og ungmennunum öryggi þannig að þau vita til hvers er ætlast af þeim og hvernig dagurinn þeirra lítur út. Með þessu verða þau öruggari og stöðugri.“

„Þegar þú ert að vinna með ungmennum sem geta sýnt ófyrirsjáanlega hegðun, skiptir náttúrulega miklu máli að þú þekkir inn á þig og hvernig þú bregst við í streituvaldandi aðstæðum. Þannig að við leggjum mikið upp úr handleiðslu fyrir starfsfólk þannig að þau nái að halda ró þegar barnið eða ungmennið er hátt í streitu.“

Vel heppnað námsfyrirkomulag

Klettabær er félag sem er með einstaklingsmiðaða þjónustu fyrir börn og ungmenni með margþættan vanda. Sigríður Hlíf segir að þó að þjónustumiðstöðin og náms- og starfssetrið sé í Hafnarfirði séu þau með búsetuúrræði víða á höfuðborgarsvæðinu.

„Við erum með búsetuúrræði og við erum með þjónustumiðstöð þar sem við erum með skammtímavistanir, hvíldarhelgar og við bjóðum upp á þjónustu eftir skóla. Við bjóðum líka upp á þjónustu fyrir þá sem eiga erfitt með að vakna og koma sér af stað í skólann. Svo erum við með náms- og starfssetur og þar erum við með skólaúrræði þar sem allir nemendur okkar eru með sína eigin heimaskóla en sækja skóla hjá okkur í gegnum tengiskóla.“

Hún segir að þetta skólafyrirkomulag hafi gengið mjög vel fyrir þennan hóp og sé auk þess mjög skemmtilegt. 

„Við erum með níu nemendur núna og þau eru öll með sína eigin stofu og svo eru þau með einhverja tíma sem eru sameiginlegir. En þau eiga alltaf sitt athvarf í sinni heimastofu.“

Viðtalið má heyra í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan. Þar tala þau meðal annars um skóla án aðgreiningar, skammtímabúsetu, framtíð Klettabæjar og vinnuúrræðið þeirra, en í því úrræði eru fimmtán einstaklingar í augnablikinu. 

Klippa: Spjallið með Góðvild - Sigríður Hlíf

Tengdar fréttir

Ósanngjarnt að ógreindir fái ekki þjónustu við hæfi

„Gallinn á Íslandi er smæðin okkar,“ segir Hans Tómas Björnsson yfirlæknir í klínískri erfðafræði á Landspítalanum. Hann segir að erlendis sé auðvelt að búa til göngudeildir fyrir ákveðna sjúkdóma eða sjúkdómahópa. 

Sýnishorn úr heimildarmyndinni Einstakt ferðalag

Í dag 28. febrúar er alþjóðadagur sjaldgæfra sjúkdóma og af því tilefni gefur Góðvild styrktarsjóður og Mission framleiðsla út stiklu úr heimildarmyndinni Einstakt ferðalag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.