Blaðamaður hafði samband við teymið sem er að fara að frumsýna nýja línu á HönnunarMars í vikunni.
Hvernig er stemningin fyrir HönnunarMars?
Við hjá Plastplan erum mjög spennt fyrir hátíðinni þar sem við munum kynna nýja vörulínu sem ber nafnið „Everyday" í fyrsta skipti á sýningunnu „Frumgerð" í Gallery Port á hátíðinni.

Hvernig kviknaði hugmyndin?
Við stofnuðum Plastplan árið 2019 með það markmið að framleiða verðmæta nytjahluti úr endurunni plasti. Í upphafi dreymdi okkur um að framleiða húsgögn og stóra vandaða muni úr plastinu og síðan er búin að fara þriggja ára vinna í að byggja allar vélar til að geta náð því markmiði.
Hver voru fyrstu skrefin í að framkvæma hana?
Við höfum þurft að læra heilmarkt um endurvinnslu, vélahönnun og vöruþróun til að klára hönnun fyrstu vörulínunnar okkar, „Everyday". Við lærðum mikið af fyrsta stóra hönnunarverkefninu okkar þegar við hönnuðum og byggðum allan infrastrúktúr fyrir nýtt kaffihús og safn sem heitir Höfuðstöðin og höldum áfram að byggja ofan á þá þekkingu.
Hvernig viðbrögð hefur hönnunin verið að fá?
Við munum sýna línuna „Everyday" í fyrsta skipti á HönnunarMars og erum virkilega spennt að sjá hver viðbrögðin verða, sjálf erum við hæst ánægð!
Er framleiðslan sambærileg einhverju sem er í gangi í dag?
Ferlarnir okkar eru að miklu leiti byggð á Precious Plastic samtökunum, þar sem Björn Steinar vann árið 2017 við að þróa vélar til plastendurvinnslu, en þó er lítið af dæmum um jafn sérhæfð hönnunarstudio og okkar.
Hvað hefur verið skemmtilegasta verkefnið hjá ykkur til þessa?
Það hefur verið virkilega gaman að fylgja eftir samstörfum við níu fyrirtæki sem við eigum í mánaðarlegu samstarfi við; A4, Byko, Blush, Iceland Air, Ikea, Íslenska Gámafélagið, Krónuna, Maul og 66° Norður, en þess fyrir utan standa tvö verkefni uppúr, Borgarvin útihúsgögn hönnuð fyrir Reykjavíkurborg og Höfuðstöðin.
Hvað er framundan?
Framundan er stanslaus endurvinnsla og þróun á skemmtilegum afurðum bæði fyrir samstarfsaðilana okkar og sömuleiðis eigin vörulínur sambærilegri þeirri sem við frumsýnum í Gallery Port.
HönnunarMars 2022 fer fram 4. til 8. maí. Alla dagskránna má finna á vef hátíðarinnar.
Frítt er inn á alla viðburði fyrir utan DesignTalks ráðstefnuna í Hörpu. HönnunarMars er opinn öllum og dagskráin er fjölbreytt svo allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.
Hér má finna alla okkar umfjöllun um HönnunarMars 2022.