Lengsta og fjölmennasta utanvegarhlaup landsins, Salomon Hengill Ultra, verður ræst í miðbæ Hveragerðis næsta föstudag. Vegalengdirnar sem eru í boði eru all frá 5 - 163 kílómetrar og stendur hlaupið yfir frá föstudegi til laugardags.

Bein útsending frá hlaupinu alla helgina
Í ár verður bein útsending frá hlaupinu í samstarfi við fyrirtækið Skjáskot og verður útsendingin bæði á Facebook Live og Youtube. Sýnt verður frá öllum ræsingum hlaupsins og byrjar hver útsending klukkutíma fyrir hverja ræsingu.
„Við erum ætlum að stefna að því að þetta hlaup verði eitt af stærstu utanvegarhlaupunum í Evrópu,“ segir Einar Bárðarson sem er einn af eigendum mótaraðarinnar Víkingamótanna sem heldur Salomon Hengil Ultra.
Hlaupadrottningarnar Rakel María Hjaltadóttir og Mari Järsk munu sjá um að stjórna útsendingu hlaupsins en sjálfar eru þær hlaupinu vel kunnugar. Árið 2020 hljóp Rakel 106 kílómetra og í fyrra hljóp Mari 160 kílómetra.
Ég ætla sjálf að hlaupa miðnæturhlaupið en svo verð ég aðallega í því að taka púlsinn á keppendum og sýna fólki heima í stofu frá allri stemmningunni og fjörinu í hlaupinu,
segir Rakel. Mari mun að þessu sinni ekki hlaupa sjálf heldur eyða orkunni í að peppa keppendur og stjórna útsendingunni ásamt Rakel.

Yfir þúsund hlauparar skráðir til leiks
Einar segir stóran og góðan hóp koma að skipulagningu og gæslu mótsins og nú geti enn fleiri upplifað stemmninguna beint í æði með því að fylgjast með beinu streymi.
„Allt í allt eru þetta tíu stjórnendur og svo sirka 80 manns sem koma að uppsetningu og gæslu mótsins.“
Hengill Ultra er nú haldið í ellefta sinn og hafa nú þegar langt yfir þúsund manns skráð sig til leiks.
„Mesti hitinn í þessu er á okkar besta manni Þórir Erlingssyni sem er framkvæmdastjóra mótanna. Maður sem er með meistaragráðu frá Háskóla í Bandaríkjunum í því að taka vel á móti fólki þannig að maður er meira orðin áhorfandi í þessu en það er mikil tilhlökkun fyrir helginni í öllum hópnum.“

Aðspurður hvort að hann sjálfur ætli að hlaupa í hlaupinu sagði Einar þetta:
Já, ég ætla mér að hlaupa fram og til baka alla helgina....að leysa allskonar vesen!
Einar segir marga af allra bestu utanvegahlaupurum landsins skráða til leiks og einnig erlendar kempur.
Já, við eigum von á danska landsliðinu í utanvegahlaupi sem mun vera með sitt sterkasta hlaupafólk í 26 kílómetra brautinni. Danirnir er lúmskir, þeir hlaupa ekki bara á jafnsléttu,
segir Einar að lokum.