Tónlist

Nýtt lag frá Júníusi Meyvant: „Gúrúar syndandi í villtum kenningum“

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Júníus Meyvant var að senda frá sér lagið Guru.
Júníus Meyvant var að senda frá sér lagið Guru. Aðsend

Tónlistarmaðurinn Júníus Meyvant sendi frá sér nýtt lag í dag sem ber nafnið Guru. Lagið er af væntanlegri plötu og segja má að þetta sé það fyrsta nýja frá honum í 3 ár á heimsvísu, að undanskildum þeim tveimur íslensku lögum sem komu út aðeins á Íslandi á síðasta ári.

Lagið Guru er töluvert frábrugðið eldra efni Júníusar og segir Júníus söguna á bak við lagið skemmtilega:

„Lagið Guru tekur mig aftur í tímann. Ég hugsa um uppeldið í Betel sem kom manni oft á óvart. Farands predikarar og andlegir leiðtogar sem fylltu mann von, gleði og þrá um eitthvað stórkostlegt. En einstaka sinnum kom líka fólk með sturlaða jaðarsýn á lífið. Í mínum huga voru þetta einhverskonar Gúrúar syndandi í villtum kenningum sem skildu oft eftir sig óþægilega þōgn og miklar vangaveltur. 

Lagið tekur á því sanna og því falska. Taktur og tilfinning lagsins byggist á endurtekningu sem róar hugann og leiðir mann í núið.“

Í dag heldur svo Júníus Meyvant af stað í mánaðarlanga tónleikaferð þar sem hann mun hita upp fyrir félaga sína í Kaleo um Evrópu. Vísir tók púlsinn á Júníusi um daginn þar sem hann ræddi tónleikaferðalagið en viðtalið má finna hér


Tengdar fréttir

Júníus Meyvant fylgir Kaleo á tónleikaferðalagi um Evrópu

Tónlistarmaðurinn Júníus Meyvant mun hita upp fyrir íslensku hljómsveitina Kaleo á tónleikaferðalagi þeirra um Evrópu. Ævintýrið hefst 4. júní í Berlín og endar í Aþenu 6. júlí. Blaðamaður sló á þráðinn og tók púlsinn á Júníusi.

Júníus Meyvant og KK frumsýna nýtt lag og myndband

Júníus Meyvant og KK voru að gefa út lagið Skýjaglópur en lagið og textinn er samið af Júníusi og er hvoru tveggja mjög hugljúft. „Hvað myndi KK gera?“ og trúin var að hluta til innblásturinn á bakvið lagið sem þeir unnu svo saman.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.