Hinn 57 ára Oelker, sem starfar hjá rannsókna- og þróunardeild BMW, hefur það að áhugamáli að fara jómfrúrferðir flugfélaga, ferðast til og frá sérstökum flugvöllum og fljúga með óvenjulegum flugvélum.
Nákvæmar ferðalýsingar á óhefðbundnum ferðalögum
Í viðtali við Akureyri.net á fimmtudaginn greindi Oelker frá ferðalagi sínu frá Munchen til Akureyrar í smáatriðum þar sem hann ferðaðist með lest, flugvél, rútu og tveimur strætóum:
„Ég fór með lest frá München til Berlínar, flaug með Play þaðan til Keflavíkur – mig langaði að fljúga líka með því félagi – tók Fly Bus frá flugvellinum til Reykjavíkur, síðan leið 3 með strætó að strætisvagni númer 57 og ók með honum norður í land!“

Einnig lýsti Oelker dvöl sinni hérlendis sem var ekki ýkja löng:
„Ég svaf um nóttina í Borgarnesi, hélt síðan áfram með leið 57 og kom til Akureyrar fyrir tveimur dögum. Í gær fór ég í Skógarböðin, í dag fer ég með Niceair til Kaupmannahafnar og seinni partinn flýg ég þaðan með Lufthansa heim til München.“
Sjaldgæfar flugvélar og sjaldgæfir flugvellir
Oelker nefnir að hann leggi ekki aðeins áherslu á að fara jómfrúrferðir flugfélaga, heldur reyni hann líka að fljúga sem oftast með nýjum eða sjaldgæfum flugvélum og til og frá sérstökum flugvöllum. Allar flugferðir, dagsetningar og eigin hugleiðingar skráir Oelker í sérstaka bók sem hann á og fær alltaf einhvern úr áhöfninni til þess að kvitta í hana.
Nánar má lesa um ferðasögu Oelker og aðrar skemmtilega flugsögur hans á vefsíðunni Akureyri.net.