Verkaskipting í nefndum og ráðum borgarinnar gerð ljós í dag Heimir Már Pétursson skrifar 7. júní 2022 11:49 Það kemur í ljós í dag hvernig flokkarnir fjórir skipa í nefndir og ráð borgarinnar. Vísir/Ragnar Borgarstjóri segir að borgarlínu verði flýtt svo hægt verði að hefja uppbyggingu á Keldnalandinu sem fyrst. Gripið verði til nauðsynlegra mótvægisaðgerða ef þörf krefji eftir áhættumat sem unnið verði af Ísavía vegna uppbyggingar við Reykjavíkurflugvöll. Verkaskipting nýja meirihlutans í nefndum og ráðum kemur í ljós í dag.
Fyrsti borgarstjórnarfundur kjörtímabilsins hefst klukkan tvö í dag. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri segir að á þeim fundi skipi meirihlutaflokkarnir og væntanlega minnihlutaflokkarnir einnig fulltrúa í nefndir og ráð. Þar með birtist verkaskipting meirihlutans á komandi kjörtímabili. Eitt af áherslumálum nýja meirihlutans er að flýta uppbyggingu húsnæðis í Keldnaholti, sem fyrri meirihluti taldi erfitt að gera án þess að borgarlína kæmi þangað samtímis. Dagur B. Eggertsson segir liggja fyrir hvaða mál verði ráðist í strax á þessu ári. Nú setjist nýi meirihlutinn yfir tímasetningar verkaefna út kjörtímabilið.Vísir/Ragnar „Það er talað um að það þurfi að flýta borgarlínu í leiðinni. Við leggjumst þá bara öll á þær árar. Vegna þess að samgöngumálin þurfa auðvitað að ganga upp á nýjum byggingarsvæðum,“ segir Dagur B. Eggertsson borgarstjóri. Meirihlutinn vilji sem allra fyrst kynna skipulagssamkeppni um svæðið í heild sinni þannig að það verði af hámarksgæðum og uppfylli væntingar til Keldnalandsins og holtsins. Í sáttmálanum væri talað um fyrstu breytingar í alls kyns verkefnum sem verði sýnileg á þessu ári. „En ég á von á að núna setjist nýr meirihluti yfir verkefnin hvert af öðru. Kynni síðan nákvæmari áætlanir á hverju sviði eftir því sem þessu vindur fram,“ segir Dagur. Eitt þeirra mála sem eru í óvissu milli borgarinnar og yfirvalda eru áform um uppbyggingu á nýju hverfi í Skerjafirði í nágrenni Reykjavíkurflugvallar. Þar talar nýr meirihluti um að tryggja þurfi flugöryggi á flugvellinum en Ísavia og stjórnvöld tala um að tryggja verði rekstraröryggi. Dagur segir hugtökin skyld. „Næsta skref í þessu er áhættumat sem Ísavia gerir með tilliti til vindafars. Undir því eiga að koma mótvægisaðgerðir sem við munum væntanlega setjast yfir með þeim og vinna þetta í góðu samstarfi,“ segir borgarstjóri. Fram hafi komið í fyrra mati Ísavia að það væri næsta skref. Dagur treystir sér ekki til að meta hvort þetta tefji byggingarframkvæmdir í Skerjafirði en hann telji vilja allra að húsnæðisuppbygging í borginni gangi eins hratt og vel og hægt væri. Hvað Sundabraut varðar vilji nýr meirihluti hefja umhverfismat og á sama tíma leiðarval og samráð í tengslum við hana sem fyrst. Bæði göng og brú komi enn til greina samkvæmt því samkomulagi sem meirihlutinn vísi til við samgönguráðherra. „Þannig að það er vilji allra að besta leiðin verði fundin til að keyra upp framkvæmdina. Og í eins góðri sátt við umhverfið og hægt er,“ segir Dagur B. Eggertsson.
Sveitarstjórnarkosningar 2022 Reykjavík Borgarstjórn Tengdar fréttir Vonast eftir hraðri uppbyggingu á kjörtímabilinu Oddvitar Framsóknarflokksins og Viðreisnar eru bjartsýnir á að framkvæmdir við nýjar íbúðir og Sundabraut geti farið hratt af stað á kjörtímabilinu. Nýr meirihluti sé einhuga um að drífa Sundabraut áfram. 7. júní 2022 11:03 Frítt í sund og strætó fyrir börn einu fingraför Framsóknar að mati Hildar Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn, segir að henni virðist einu fingraför Framsóknarflokksins á málefnasamningi nýja meirihlutans í borginni vera að frítt verði í sund og strætó fyrir börn. Hún kvartar yfir leiðindapólitík sem hafi verið stunduð þegar flokkar voru að máta sig í meirihlutaviðræðum. 7. júní 2022 09:44 Fjórir flokkar sem hafi þurft að mætast einhvers staðar Oddviti Viðreisnar segir það fyrsta verk á dagskrá nýs borgarstjórnarmeirihluta í Reykjavík að setja aukinn kraft í húsnæðisuppbyggingu sem verði stórt áherslumál á næsta kjörtímabili. 6. júní 2022 23:46 Einar tekur við af Degi sem borgarstjóri árið 2024 Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingarinnar og borgarstjóri, mun áfram gegna embætti borgarstjóra Reykjavíkur fyrri hluta kjörtímabilsins, eða til ársloka 2023. Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknar, mun síðan taka við embættinu af Degi í ársbyrjun 2024. Á kjörtímabilinu mun Dagur því gegna embættinu í rúmlega eitt og hálft ár, en Einar í tæplega tvö og hálft ár. 6. júní 2022 15:10 Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Fleiri fréttir Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Sjá meira
Vonast eftir hraðri uppbyggingu á kjörtímabilinu Oddvitar Framsóknarflokksins og Viðreisnar eru bjartsýnir á að framkvæmdir við nýjar íbúðir og Sundabraut geti farið hratt af stað á kjörtímabilinu. Nýr meirihluti sé einhuga um að drífa Sundabraut áfram. 7. júní 2022 11:03
Frítt í sund og strætó fyrir börn einu fingraför Framsóknar að mati Hildar Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn, segir að henni virðist einu fingraför Framsóknarflokksins á málefnasamningi nýja meirihlutans í borginni vera að frítt verði í sund og strætó fyrir börn. Hún kvartar yfir leiðindapólitík sem hafi verið stunduð þegar flokkar voru að máta sig í meirihlutaviðræðum. 7. júní 2022 09:44
Fjórir flokkar sem hafi þurft að mætast einhvers staðar Oddviti Viðreisnar segir það fyrsta verk á dagskrá nýs borgarstjórnarmeirihluta í Reykjavík að setja aukinn kraft í húsnæðisuppbyggingu sem verði stórt áherslumál á næsta kjörtímabili. 6. júní 2022 23:46
Einar tekur við af Degi sem borgarstjóri árið 2024 Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingarinnar og borgarstjóri, mun áfram gegna embætti borgarstjóra Reykjavíkur fyrri hluta kjörtímabilsins, eða til ársloka 2023. Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknar, mun síðan taka við embættinu af Degi í ársbyrjun 2024. Á kjörtímabilinu mun Dagur því gegna embættinu í rúmlega eitt og hálft ár, en Einar í tæplega tvö og hálft ár. 6. júní 2022 15:10