Fór í kulnun út frá miklu álagi og vinnur nú að heimildarmynd Ása Ninna Pétursdóttir skrifar 21. júní 2022 11:50 Leikkonan og leikstjórinn Magnea Björk Valdimarsdóttir vinnur nú að heimildarmynd og auglýsti á dögunum eftir fólki sem hefur upplifað kulnun á eigin skinni. Helen Maybanks „Ég hef sjálf reynslu af því að fara í kulnun og þurfti í kjölfarið að fara í veikindaleyfi frá leiklistarkennslu,“ segir leikkonan og leikstjórinn Magnea Björk Valdimarsdóttir í viðtali við Vísi.
Margir vilja deila reynslu sinni Á dögunum auglýsti Magnea eftir fólki sem hefur reynslu af kulnun vegna heimildarmyndar sem hún byrjaði að vinna að síðasta sumar. Hún segir hugmyndina hafa verið að gerjast með sér í um tvö ár en sjálf hafi hún upplifað kulnun á eigin skinni. Hún segir viðbrögðin hafa verið geysimikil og marga viljað deila reynslu sinni. „Þetta er í raun heimildarmynd um jógaiðkun víðs vegar í heiminum og um fólk sem nýtir sér verkfæri jóga og hugleiðslu til þess að yfirstíga síþreytu og kulnun, “ segir Magnea en kulnun segir hún að sjálfsögðu geta orsakast af ýmsum þáttum. Þetta geta verið persónuleg áföll, missir, of mikið vinnuálag eða álag heima fyrir. Svo hjálpar kannski ekki takturinn í samfélaginu við það að minnka stressið. Sjálf gekk Magnea í gegnum mikið álag í starfi og einkalífi sem orsakaði það að hún fór í kulnun og fór í veikindarleyfi frá kennslu. Helen Maybanks Karlar virðist síður tjá sig um kulnun Samhliða því að kynna sér ólíka hópa eða leiðir til að iðka jóga, langar Magneu til þess að heyra frá fólki á Íslandi sem hefur leitað sér hjálpar hjá Virk og komist aftur af stað út í lífið. Sjálf hefur Magnea reynslu af því að fara í kulnum sem orsakaði það að hún þurfti að fara í veikindaleyfi frá leiklistarkennslu. Á þeim tíma var mikið álag í einkalífi og vinnu og svo hjálpaði það ekki að fá taugaáfall en stuttu eftir það brast á heimsfaraldurinn Covid-19. Hún segir margar vinkonur sínar hafa farið í gegnum prógramm hjá Virk en hún heyri einhverja hluta vegna minna af því hjá körlum. „Það eru örugglega einhverjir karlar líka sem hafa farið í Virk sem ég þekki en þeir tala minna um það, sem er auðvitað algjör synd,“ segir Magnea. Vitneskjan og vitundin um kulnun sé þó sem betur fer að aukast með ári hverju. Þó svo að samfélagið sé orðið meðvitaðra um alvarleg áhrif kulnunar segist Magnea taka eftir því að karlmenn tjái sig síður um sína reynslu, sem sé miður. Helen Maybanks Önnur hver kona í jógakennaranámi eða hjá Virk Með breyttum tímum og tíðaranda segist Magnea finna fyrir aukinni samkennd í samfélaginu. Þökk sé Me-too bylgjunum er líka meiri vitund um að kynferðisofbeldi eigi ekki að hunsa eða leiða hjá sér ef samborgari verður fyrir því. Á tímabili segir Magnea að henni hafi fundist eins og önnur hver kona á Íslandi væri annað hvort í jógakennaranámi eða hjá Virk, sem sé kannski ekki svo fjarri lagi. „Tímarnir eru að breytast og margir vilja vinna í sjálfum sér, þroskast í stað þess að staðna, vinna í áföllum og huga að andlegri og líkamlegri heilsu,“ segir Magnea en jóga hefur alltaf verið stór hluti af hennar lífi. „Alveg síðan að ég var unglingur í leiklist í Kramhúsinu.“ Fólk sem vinni við það að gefa af sér viðkvæmara fyrir kulnun Hún segir það einkenna sérstaklega kennarastéttina og fólk í heilbrigðisgeiranum að fara í gegnum kulnun, þar sem álagið á þessum hópum sé oft á tíðum alltof mikið og fólk vinni við það að gefa af sér. Þess vegna eru listamenn og þeir sem vinna við að koma fram opinberlega líka viðkvæmir fyrir. Stefnan er að frumsýna myndina eftir um það bil ár og segir Magnea líklegt að það verði um haustið þó svo að hún ætli ekki að setja óþarfa pressu á sig. „Það er ekkert stress. Það er miklu mikilvægara að stoppa og muna að anda að sér fersku lofti og vera þolinmóður.“ Hún segist vonast til þess að myndin muni ná til fólks og sá nokkrum fræjum. „Það gefur lífinu svo mikinn tilgang að fá að sinna einhverju skemmtilegu og leyfir manni að fá að vaxa og þroskast sem manneskja,“ segir Magnea að lokum.
Kvikmyndagerð á Íslandi Heilsa Jóga Mest lesið Lengsti klukkutími ævinnar Gagnrýni Fyrirsætan og Dallas-leikkonan Annabel Schofield látin Bíó og sjónvarp Verður að fara inn í nýjan áratug með stæl Lífið Tóti fékk bílinn lánaðan frá Líf Magneudóttur Lífið „Skelfileg væmni og tilfinningaklám“ eða „eitt það allra áhrifaríkasta“ Lífið Kattavinafélagið minnist dýravinarins Davíðs Lífið „Til hamingju með daginn Brooklyn, við elskum þig svo mikið“ Lífið Slakur með 62 milljón króna hálsmen Tíska og hönnun „Búinn að setja miklu meira í þennan gám heldur en ég tók út“ Lífið Sviðshöfundar blótuðu þorrann í góubyrjun Lífið Fleiri fréttir „Til hamingju með daginn Brooklyn, við elskum þig svo mikið“ Fiskur og kjöt einnig á boðstólnum hjá Sollu Ómetanlegt að hafa sagt frá átröskuninni „Skelfileg væmni og tilfinningaklám“ eða „eitt það allra áhrifaríkasta“ Tóti fékk bílinn lánaðan frá Líf Magneudóttur Kattavinafélagið minnist dýravinarins Davíðs Verður að fara inn í nýjan áratug með stæl Sviðshöfundar blótuðu þorrann í góubyrjun Spurning um The Terminator upp á tvö hundruð þúsund Guðlaugur Þór kampakátur þegar listinn var kynntur „Búinn að setja miklu meira í þennan gám heldur en ég tók út“ Innlit í Klínikina: „Það er samfélagslega dýrt að gera ekkert“ „Ég verð að þakka þér fyrir að herma eftir mér“ Best að geta elt draumana saman Skilaboðaskjóðan sýnd á Selfossi Laufey og Collab í eina sæng Guðni og gellurnar mættu í kokteilboð Er Rothschild-ættin að sölsa undir sig allan heiminn? Ólga vegna brotthvarfs Sölku Sólar: „Þetta er vond ákvörðun“ Truflað hádegisdjamm í nafni mannréttinda Ástrós Trausta og Adam kveðja Fossvoginn Minnast Davíðs: Hugrakkur, hnyttinn og stór í sniðum Rosalía og Björk slógu í gegn á Brit-hátíðinni Fór alla leið inn í hausinn á konu sem treystir ekki eigin skynjun Stjörnulífið: Hilmir Snær og Vala Kristín kósí í Laugum Salka Sól látin fara „Hvernig er hægt að deyja áður en maður fæðist?“ Var rænd af barnahópi á Filippseyjum Vinslit, ofbeldi, líkamssmánun og niðurlæging í ANTM Krakkatía vikunnar: Api, fjall og Barbie Sjá meira