Kvikmyndagerð á Íslandi

Fréttamynd

Ríkis­út­varpið og hlut­verk þess

Ragga Jóns skrifaði á facebook: "Hlemmur er ein af þessum heimildamyndum sem hefur lifað í mér öll þessi ár. Ég veit eiginlega ekki hversu oft ég hef séð hana, það hleypur á tugi skipta. Og hún hreyfir alltaf jafn mikið við manni.

Skoðun
Fréttamynd

Boltamömmur í miðjumoði

Boltamömmur eru fagmannlega gerðir gamanþættir um ofstopafulla hegðun foreldra á fótboltaleikjum, bældar miðaldra konur og leyndarmál í úthverfunum. Þættirnir eru skemmtilega vandræðalegir með sterkum frammistöðum og nokkrum grínsprettum. Hvorki dramað né spennan eru tekin alla leið og enda þeir þess vegna í hálfgerðu miðjumoði.

Gagnrýni
Fréttamynd

White Lotus-stjarna bætist í leik­hópinn

Kanadíski leikarinn Adam DiMarco, sem sló í gegn í annarri seríu gamanþáttanna White Lotus, hefur bæst í leikhóp kvikmyndarinnar Hafið er svart. Hann mun þar leika á móti Baltasar Kormáki og Ólafi Darra í spennumynd um martraðarkennda sjóferð.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Kempa leik­stýrir tálbeitutrylli Ólafs Darra

Kanadíski leikstjórinn Kari Skogland mun leikstýra spennuþáttaseríunni Stóra bróðir (Vigilant á ensku) sem byggir á samnefndri glæpasögu eftir Skúla Sigurðsson og fjallar um blaðamann sem tekst á við dularfulla tálbeituglæpi. Serían hefur verið í þróun í nokkur ár, Ólafur Darri Ólafsson leiðir handritaskrifin og hefjast tökur hérlendis í lok mánaðar.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Vantar sex milljónir til að halda Edduna

Leitað er til Alþingis um sex milljóna króna styrk vegna Edduhátíðarinnar í febrúar á næsta ári. Hátíðin í ár var haldin með halla þrátt fyrir niðurskurð og þrjár milljónir króna vegna hennar eru enn ógreiddar.

Innlent
Fréttamynd

Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður

Logi Einarsson ætlar að flýta gerð nýs þjónustusamnings við Ríkisútvarpið þar sem miðlinum verða settar frekari skorður á samkeppnismarkaði. Nýr samningur átti að líta dagsins ljós í lok næsta árs en verður gerður á fyrri hluta ársins. Á svipuðum tíma boðar hann fyrstu háskólastefnu Íslands. Logi segir að það sem þar verður kynnt verði örugglega umdeilt en í stefnunni verði ekki að finna skipanir um sameiningu skóla. 

Innlent
Fréttamynd

Eignar Ingu Sæ­land plötutitilinn

„Mér finnst ógeðslega erfitt að finna titla á hluti, sérstaklega þegar maður er að gera músík sem er ekki með neinum orðum. Þannig að ég byrjaði bara að leita; grúska í bókum, fletta í gegnum eitthvað og reyna bara að finna einhver orð eða setningar. Þegar ég var alveg að vera búinn með plötuna og mig vantaði ennþá titil þá fór ég bara að skrolla á Vísi og þar var þessi fyrirsögn.“

Lífið
Fréttamynd

„Stöðumælaverðir eru líka fólk og þeir hafa til­finningar“

Grínistinn Kjartan Logi var að gefa út lagið „Stöðumælavörð“ og með því tónlistarmyndband. Kjartan hefur unnið sem stöðumælavörður samhliða gríninu síðustu ár en missti starfið um áramótin. Hann er þó ekki að hefna sín á fyrrverandi yfirmönnum og segir starf stöðumælavarðarins vanþakklátt.

Tónlist
Fréttamynd

Kyn­líf mið­aldra kvenna í brenni­depli

Fleiri Pabbahelgar er ný íslensk gamandramaþáttaröð í sex hlutum sem verður frumsýnd á RÚV sunnudaginn 18. október. Þáttaröðin er framhald af Pabbahelgum og fjallar um Karen, einstæða þriggja barna móður og hjónabandsráðgjafa, sem þarf að takast á við unglingsbörn, fyrrverandi eiginmann á sama tíma og íslenskan stefnumótaheim.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Elma seld til út­landa

Íslenska framleiðslufyrirtækið Glassriver hefur samið við alþjóðlega dreifingaraðilann Mediawan Rights um erlenda dreifingu íslensku glæpaþáttaraðarinnar Elmu. Þættirnir byggja á Marrinu í stiganum eftir Evu Björgu Ægisdóttur og verða frumsýndir hérlendis á Sjónvarpi Símans 15. október næstkomandi.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Ástar­bréf til ís­lenskra költmynda

Lagið „Fokkamérupp“ með Alösku og Frumburði kom út á miðnætti og tónlistarmyndband við lagið er frumsýnt á Vísi í dag. Tónlistarmyndbandið er innblásið af íslenskum kvikmyndum á borð við Blossa, Íslenska drauminn og Astrópíu sem komu út í kringum aldamót og var það tekið upp á filmu til að fanga nostalgíutilfinninguna.

Tónlist
Fréttamynd

Hrútar orðnir að kóreskum kálfum

Íslenska kvikmyndin Hrútar eftir Grím Hákonarson hefur verið endurgerð í annað sinn. Ástralir endurgerðu hana fyrst árið 2020 með stórstjörnunni Sam Neill og í vikunni verður suður-kóresku endurgerðina Cattle Run frumsýnd með kálfum í stað hrúta.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Segir Ríkis­sjón­varpið bregða fyrir sig fæti

Hlemmur, kvikmynd Ólafs Sveinssonar, hefur öðlast svokallaðan „költstatus“. Myndin er rúmlega tuttugu ára gömul og um hana leikur ljómi. Þar er fjallað um menn götunnar, fólk sem á við drykkjuvanda og/eða geðrænan vanda að stríða. Ólafur er nú með þrjár myndir aðrar í smíðum en hann segir Ríkissjónvarpið vera Þránd í Götu – og tæplega uppfylla lagalegar skyldur sínar.

Lífið
Fréttamynd

Upp­selt á opnunarmyndina í tveimur sölum

Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík hefst í kvöld, fimmtudaginn 24. september, með sýningu opnunarmyndarinnar The Last First: Winter K2 í Háskólabíói. Uppselt er í bæði sal 1 og sal 2, enda hefur myndin vakið gríðarlegan áhuga.

Innlent
Fréttamynd

Greiðir sér hálfan milljarð í arð

Sögn ehf., félag leikstjórans og kvikmyndaframleiðandans Baltasars Kormáks Baltasarssonar, hagnaðist um 340 milljónir árið 2025. Árið 2024 greiddi hann sér 510 milljónir í arð og í ár gætu arðgreiðslurnar numið 550 milljónum. 

Lífið
Fréttamynd

Sjóðurinn tómur

Potturinn sem ætlaður var fyrir endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi kláraðist um mitt ár. Nokkrar umsóknir bíða afgreiðslu. Sótt verður um aukafjárveitingu frá Alþingi.

Lífið
Fréttamynd

Að horfa heim

Ég hef starfað við kvikmyndagerð stóran hluta starfsævinnar og stundum finnst mér eins og við séum alltaf að byrja aftur. Við byggjum eitthvað upp, fólk lærir, fær reynslu og teymi verða til.

Skoðun
Fréttamynd

Hroð­virknis­legt hljóð og klisjur setja strik í reikninginn

Öflugur ungur leikhópur og urmull slagara Sálarinnar hans Jóns míns gera söngvamyndina Hvar er draumurinn? að fínustu skemmtun. Kvikmyndin er gerð án styrkja af nýgræðingum í faginu og ástríðan skín í gegn. Ákveðinn byrjendabragur er á vanþróuðu handritinu og hroðvirknislegri hljóðvinnslu sem getur gengið fram af áhorfendum í sumum tónlistarsenum.

Gagnrýni
Fréttamynd

Skrifaði gaman­þætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu

Kvartanir vegna kynlífsathafna. Maður dettur í karókí. Kúkur á bílahúddi. Maður í annarlegu ástandi „bítur frá sér“. Fyrir flesta eru þetta furðulegar, stuttar færslur úr dagbók lögreglunnar sem maður les, brosir yfir og gleymir svo. Fyrir Ólaf Ásgeirsson og samstarfsfólk hans urðu þær hins vegar að efnivið í nýja íslenska gamanþáttaröð, Dagbók lögreglu, þar sem hversdagsleg og oft stórfurðuleg útköll lögreglu eru tekin, teygð, snúin og færð yfir í skáldskap.

Lífið
Fréttamynd

Myndin til­einkuð mömmu

„Mamma mín spilaði hana mjög mikið. Maður á ófáar góðar og hlýjar minningar af því þegar maður sat í aftursætinu í bíl með mömmu á rúntinum og hún var alltaf með Sálina skrúfaða upp í botn.“

Lífið
Fréttamynd

Fylltu Egilshöllina á for­sýningu Hvar er draumurinn?

Hátíðarforsýning á söngvamyndinni Hvar er draumurinn? fór fram í Egilshöll í gær og fylltist höllin af stjörnum úr leiklistarsenunni og öðrum góðum gestum. Kvikmyndin er nostalgísk sumarsaga sem byggir á lögum Sálarinnar hans Jóns míns og fjallar um ungt fólk á tíunda áratug síðustu aldar.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Jörðin undir fótum okkar fram­lag Ís­lands til Óskars­verð­launa

Heimildarmyndin Jörðin undir fótum okkar, í leikstjórn Yrsu Roca Fannberg, verður framlag Íslands til Óskarsverðlaunanna árið 2027. Dómnefnd Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar sá um valið en í henni í sátu fulltrúar helstu fagfélaga kvikmyndaiðnaðarins, auk fulltrúa kvikmyndahúsa, gagnrýnenda og Kvikmyndamiðstöðvar Íslands.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Stjörnufans á frum­sýningu Um tímann og vatnið

Heimildarmyndinn Um tímann og vatnið, sem byggir á samnefndri bók Andra Snæs Magnasonar, var frumsýnd með pompi og prakt í stóra sal Háskólabíós í gærkvöldi. Meðal gesta voru forseti Íslands, ráðherrar, Vigdís Finnbogadóttir og fjöldi nafntogaðra gesta.

Bíó og sjónvarp