Ný jarðgangagjöld áformuð til að greiða Fjarðarheiðargöng Kristján Már Unnarsson skrifar 11. júlí 2022 22:10 Fjarðarheiðargöng. Fyrirhugaður gangamunni í Seyðisfirði. Vegagerðin/Mannvit Ríkið áformar að mæta ríflega helmingi 45 milljarða króna kostnaðar vegna Fjarðarheiðarganga með nýrri gjaldtöku af umferð um önnur jarðgöng í landinu. Samgöngufélagið segir að þetta gangi tæpast upp og að óforsvaranlegt sé að ráðast í útboð nema fyrir liggi með ótvíræðum hætti hvernig staðið verði að gjaldtökunni.
Fjallað var um málið í fréttum Stöðvar 2 en fyrirhuguð jarðgöng undir Fjarðarheiði til Seyðisfjarðar verða í hópi lengstu vegganga í heimi, 13,3 kílómetra löng. Vegagerðin áætlar í matsskýrslu að kostnaður verði um 45 milljarðar króna. Þar segir að í samgönguáætlun sé gert ráð fyrir 17,7 milljörðum til verksins, en það er aðeins um 40 prósent áætlaðs kostnaðar. Gangamunni Egilsstaðamegin við Eyvindará.Vegagerðin/Mannvit Í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar, sem samþykkt var á lokadögum þingsins í síðasta mánuði, kemur fram hvernig ætlunin er að brúa bilið. Þar segir: „Yfir 15 ára tímabil jarðgangaáætlunar er stefnt að því að bein framlög til gangagerðar nemi um 25 milljörðum króna og muni sú upphæð standa undir helmingi framkvæmdakostnaðar. Það sem upp á vantar muni koma úr gjaldtöku af umferð í jarðgöngum. Fyrstu göng áætlunarinnar eru Fjarðarheiðargöng.“ Sérstök jarðgangagjöld eru boðuð í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar, sem Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra fékk samþykkta á Alþingi.Stöð 2/Skjáskot Samgöngufélagið segir í umsögn að þessi hugmynd gangi tæpast upp, þar sem tvenn fjölförnustu veggöng þjóðvegakerfisins, annarsvegar Hvalfjarðargöng hafi þegar verið greidd upp með veggjöldum, og hinsvegar Vaðlaheiðargöng en þar sé gjaldtaka nú þegar sem renni til kostnaðar við gerð þeirra. Umsögn_Samgöngufélagsins_um_umhverfismatsskýrslu_Vegagerðarinnar_fyrir_Fjarðarheiðargöng_05DOCX370KBSækja skjal Hæpið sé að leggja gjald á umferð um Strákagöng, Múlagöng og göng undir Breiðadals- og Botnsheiði þar sem þau uppfylla ekki kröfur dagsins í dag. Þá séu ekki eftir nema fimm göng, sem teljast uppfylla kröfur, það er Dýrafjarðargöng, Bolungarvíkurgöng, Héðinsfjarðargöng, Norðfjarðargöng og Fáskrúðsfjarðargöng, og umferð sem fari um þau standi vart undir miklum tekjum. Innheimtu veggjalda í Hvalfjarðargöng lauk haustið 2018 þegar vegfarendur voru búnir að greiða upp göngin. Núna eru horfur á að gjaldtaka hefjist að nýju.Vilhelm Gunnarsson Segir Samgöngufélagð forsendur fyrir gerð Fjarðarheiðarganga byggðar á svo veikum grunni að ekki sé forsvaranlegt að ráðast í útboð og framkvæmdir nema fyrir liggi með ótvíræðum hætti hvernig að gjaldtöku verði staðið, fjárhæð gjalds, tímalengd gjaldtöku og annað sem máli kann að skipta. Jafnframt segir félagið á allan hátt eðlilegra og farsælla að tengja fyrst Norðfjörð og Seyðisfjörð með tvennum göngum um Mjóafjörð. Ekki væri fullnægjandi rökstuðningur fyrir þeirri afdrifaríku ákvörðun að ráðast fyrst í gerð Fjarðarheiðarganga. Skýrsla sem ákvörðunin byggi á, og út kom árið 2019, væri ekki að öllu leyti byggð á traustum grunni. Tvenn jarðgöng sem tengja Seyðisfjörð og Norðfjörð um Mjóafjörð skapa strax hringtengingu milli byggða Austfjarða og því farsælla að þau verði á undan Fjarðarheiðargöngum, að mati Samgöngufélagsins.Grafík/Stöð 2 Með göngum milli Seyðisfjarðar og Norðfjarðar, þar sem sjúkrahús fjórðungsins er, yrði nánast alltaf fær leið til og frá Seyðisfirði þótt vissulega yrði langt til Egilsstaða. Væri vandséð af hverju þörf til að komast til Egilsstaða væri miklu meiri fyrir Seyðfirðinga en Norðfirðinga. Ýmis ávinningur annar skapaðist með göngum milli Norðfjarðar og Seyðisfjarðar sem ekki fengist með Fjarðarheiðargöngum, þar á meðal hringtenging, auk þess sem heilsársleið milli Mjóafjarðar og annarra landshluta opnaðist, segir í umsögn Samgöngufélagsins. Hér má sjá frétt Stöðvar 2:
Vegagerð Samgöngur Múlaþing Fjarðabyggð Byggðamál Vegtollar Hvalfjarðargöng Dýrafjarðargöng Tengdar fréttir Hvetur til þess að Íslendingar grafi mörg jarðgöng samtímis Bæjarstjóri Fjarðabyggðar, fjölmennasta sveitarfélags Austurlands, hvetur til þess að Íslendingar taki Færeyinga sér til fyrirmyndar í jarðgangagerð og grafi mörg göng samtímis. Hann segir lykilatriði að hringtengja Austfirði með jarðgöngum, - það sé eina leiðin til að tryggja framtíð Mjóafjarðar. 22. febrúar 2022 22:22 Mikilvægt að hefja framkvæmdir á Fjarðarheiði eins fljótt og hægt er Vonskuveður var víðast hvar á landinu í dag og töluvert um foktjón. Þá var úrhellir á Seyðisfirði og Fjarðarheiði var lokuð bróðurpart dags. Sveitarstjóri Múlaþings segir gríðarlega mikilvægt að hefja framkvæmdir á Fjarðarheiði eins fljótt og auðið er. 27. desember 2020 19:00 Vilja að þrenn jarðgöng eystra verði öll boðin út á sama tíma Hringtenging á Austurlandi myndi gerbreyta samskiptum íbúa á svæðinu og gera það að einu þjónustu- og atvinnusóknarsvæði. Bæjarráð Fjarðabyggðar leggur áherslu á að þrenn göng verði boðin út samtímis til að tryggja framgang þeirra. 16. ágúst 2019 07:30 Leggja til 33 milljarða króna göng sem verða þau lengstu á Íslandi Verkefnishópur sem skipaður var af samgönguráðherra leggur til að gerð verði jarðgöng undir Fjarðarheiði til að rjúfa einangrun Seyðisfjarðar og styrkja samfélagið á Austurlandi öllu með tvennum göngum. 14. ágúst 2019 14:15 Sveitarstjórnarmenn báðu alþingismenn um veggjöld Veggjöld! Veggjöld! Þetta voru skilaboðin sem alþingismenn fengu frá sveitarstjórnarmönnum af landsbyggðinni á þingnefndarfundi í dag, en þeir vilja meira fjármagn í jarðgöng og til að malbika sveitavegi. 15. janúar 2019 20:15 Mest lesið Upptaka náðist af alvarlegu umferðarslysi Innlent Eldingu laust niður á höfuðborgarsvæðinu Veður Einn drengur í meðferð á nýju meðferðarheimili Innlent Alvöru inniveður um helgina Innlent Segir hvorki Jesú, Múhameð né Þór hafna yfir lög Innlent Segir Kúbu brátt munu falla Erlent Hafa ekki náð á 26 Íslendinga í Mið-Austurlöndum Innlent Þurfi ekki að óttast bílnúmeralesara við Sorpu Innlent Tveir á slysadeild með áverka í andliti Innlent Loka veginum til morguns vegna snjóflóðs Innlent Fleiri fréttir Lýsa yfir hættustigi vegna snjóflóðahættu Gerir ráð fyrir harkalegri umræðu um þjóðaratkvæðagreiðsluna Hafa ekki náð á 26 Íslendinga í Mið-Austurlöndum Upptaka náðist af alvarlegu umferðarslysi Tveir á slysadeild með áverka í andliti Einn drengur í meðferð á nýju meðferðarheimili Tveir grunaðir um stórfellda líkamsárás í miðbænum Segir hvorki Jesú, Múhameð né Þór hafna yfir lög Þurfi ekki að óttast bílnúmeralesara við Sorpu Listamönnum fækkar ört Alvöru inniveður um helgina Kristinn hafði betur gegn Alexöndru og verður oddviti Pírata Selfosskirkja 70 ára og kirkjukórinn 80 ára Kjartan og Marta til liðs við Miðflokkinn Útiloka að þjóðaratkvæðagreiðslan fái hraða afgreiðslu Rætt við stjórnarandstöðuna um atkvæðagreiðslu um ESB Truflanir víða vegna eldingaveðurs Hvalfjarðargöng lokuð Vatnselgur undir brúnni í Ártúnsbrekku Ríkisstjórnin feli aðgerðaleysi á bak við atkvæðagreiðsluna Enn frekari dráttur á máli Margrétar „Verið að vaða áfram með æðibunugangi“ Rafmagnslaust vegna eldingar Jakob Bjarnar, Kjartan og Sunna tilnefnd til blaðamannaverðlauna Bráðabirgðaráðstafnir í Reynisfjöru: Nýr útsýnispallur rís í vor Mál Margrétar flutt á ný vegna dráttar Bjarki lætur staðar numið í Dalabyggð Ísland sé í sterkari stöðu en áður fyrir aðildarviðræður Alvarlegt umferðarslys við Munaðarnes Bein útsending: Staða loftlagsrannsókna á Íslandi Sjá meira
Hvetur til þess að Íslendingar grafi mörg jarðgöng samtímis Bæjarstjóri Fjarðabyggðar, fjölmennasta sveitarfélags Austurlands, hvetur til þess að Íslendingar taki Færeyinga sér til fyrirmyndar í jarðgangagerð og grafi mörg göng samtímis. Hann segir lykilatriði að hringtengja Austfirði með jarðgöngum, - það sé eina leiðin til að tryggja framtíð Mjóafjarðar. 22. febrúar 2022 22:22
Mikilvægt að hefja framkvæmdir á Fjarðarheiði eins fljótt og hægt er Vonskuveður var víðast hvar á landinu í dag og töluvert um foktjón. Þá var úrhellir á Seyðisfirði og Fjarðarheiði var lokuð bróðurpart dags. Sveitarstjóri Múlaþings segir gríðarlega mikilvægt að hefja framkvæmdir á Fjarðarheiði eins fljótt og auðið er. 27. desember 2020 19:00
Vilja að þrenn jarðgöng eystra verði öll boðin út á sama tíma Hringtenging á Austurlandi myndi gerbreyta samskiptum íbúa á svæðinu og gera það að einu þjónustu- og atvinnusóknarsvæði. Bæjarráð Fjarðabyggðar leggur áherslu á að þrenn göng verði boðin út samtímis til að tryggja framgang þeirra. 16. ágúst 2019 07:30
Leggja til 33 milljarða króna göng sem verða þau lengstu á Íslandi Verkefnishópur sem skipaður var af samgönguráðherra leggur til að gerð verði jarðgöng undir Fjarðarheiði til að rjúfa einangrun Seyðisfjarðar og styrkja samfélagið á Austurlandi öllu með tvennum göngum. 14. ágúst 2019 14:15
Sveitarstjórnarmenn báðu alþingismenn um veggjöld Veggjöld! Veggjöld! Þetta voru skilaboðin sem alþingismenn fengu frá sveitarstjórnarmönnum af landsbyggðinni á þingnefndarfundi í dag, en þeir vilja meira fjármagn í jarðgöng og til að malbika sveitavegi. 15. janúar 2019 20:15