550 höfða mál gegn Uber vegna kynferðisbrota ökumanna Hólmfríður Gísladóttir skrifar 14. júlí 2022 08:28 Í stefnunni eru forsvarsmenn Uber sakaðir um að hafa tekið vöxt fyrirtækisins fram yfir öryggi farþega. epa/Justin Lane 550 konur hafa höfðað mál gegn Uber vegna kynferðisbrota ökumanna á vegum fyrirtækisins. Glæpirnir sem ökumennirnir eru sagðir hafa framdir eru meðal annars mannrán, nauðganir, kynferðisofbeldi og áreitni.
Í gögnum málsins segir að árásirnar hafi átt sér stað í nokkrum ríkjum Bandaríkjanna og þá eru 150 mál til viðbótar í rannsókn. Það er lögmannsstofan Slater Slater Schulman sem fer með málið fyrir hönd kvennanna en í stefnunni segir að forsvarsmenn Uber hafi vitað það frá 2014 að ökumenn hefðu nauðgað og beitt konur kynferðisofbeldi en þeir hefðu ákveðið að taka vöxt fyrirtækisins fram yfir öryggi farþega sinna. „Viðskiptamódel Uber gekk út á að veita fólki öruggt far heim en í raun var þeim aldrei annt um öryggi. Það sem skipti máli var vöxtur, á kostnað öryggis farþega,“ segir Adam Slater. Samkvæmt öryggisskýrslu Uber fyrir Bandaríkin, sem var birt í síðasta mánuði, var tilkynnt um 998 kynferðisbrot árið 2020, þar af 141 nauðgun. Atvikin skipta þúsundum frá 2017. Í stefnunni er fyrirtækið meðal annars sakað um að hafa ekki kannað bakgrunn ökumanna með fullnægjandi hætti. Talsmenn fyrirtækisins segja hins vegar að úrbætur hafi verið gerðar á starfsemi fyrirtækisins á síðustu árum.
Bandaríkin Kynferðisofbeldi Mest lesið „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira