Tíska og hönnun

Tískufrömuðurinn Issey Miyake látinn

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Klappað fyrir Miyake á tískuvikunni í París 1997.
Klappað fyrir Miyake á tískuvikunni í París 1997. Getty/Daniel Simon

Japanski tískuhönnuðurinn Issey Miyake er látinn, 84 ára að aldri. Hann lést af völdum krabbameins í lifur á föstudag og hefur jarðarför hans þegar farið fram í kyrrþey, segja japanskir fréttamiðlar.

Miyake var þekktur fyrir nýstárlega og framúrstefnulega hönnun og sem brautryðjandi í tísku 20. aldar. 

Steve Jobs klæddur i svarta rúllukragabolinn eftir Miyake.Getty/Justin Sullivan

Hann byggði upp fatamerki sitt, Issey Miyake, og gerði það að alþjóðlega þekktri vöru en þekktasta hönnun hans er vafalaust svarti rúllukragabolurinn sem Steve Jobs gerði að einkennismerki sínu.

Miyake fæddist í Hiroshima árið 1938 og var aðeins sjö ára þegar kjarnorkusprengja Bandaríkjamanna féll á borgina og lagði hana í rúst. Móðir hans lést af völdum geislunar þremur árum eftir sprengjuna. 

Sjálfur talaði Miyake ekki um þessa reynslu sína fyrr en á gamals aldri þar sem hann vildi ekki verða þekktur sem „hönnuðurinn sem lifði af kjarnorkusprenguna.“

Fyrirsætur klæddar hönnun Issey Miyake á tískuvikunni í París 2018,Getty/Kristy Sparow





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.