Lífið

For­seta­hjónin reimuðu á sig hlaupa­skóna

Ellen Geirsdóttir Håkansson skrifar
Forsetinn minnirá opið hús á Bessastöðum í dag frá 13:00 til 16:00.
Forsetinn minnirá opið hús á Bessastöðum í dag frá 13:00 til 16:00. Vísir/Hulda Margrét

Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka fer fram í dag og létu forsetahjónin sig ekki vanta. Ásamt þeim hefur mikill fjöldi ákveðið að reima á sig hlaupaskóna og taka þátt.

Íslandsmeistarinn Arnar Pétursson og Silviu Stoica voru hnífjafnir í maraþonhlaupi Reykjavíkurmaraþonsins í morgun. Arnar kláraði á tímanum 2:35:18 og Silviu á 2:35:37 en við fyrstu mælingar var útlit fyrir að þeir hafi klárað á nákvæmlega sömu sekúndunni.

Eliza Reid, forsetafrú lét sig ekki ekki vanta og af myndunum að dæma gekk hlaupið vel hjá henni en hún hljóp tíu kílómetra. 

Guðni Th. Jóhannesson, forseti lands og þjóðar tók einnig þátt eins og sjá má hér að neðan og minnir fólk á að kíkja við á Bessastöðum í dag í tilefni Menningarnætur en þar er opið frá 13:00 til 16:00. 

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra tók einnig þátt í morgun og hljóp fyrir Alzheimer-samtökin en Katrín hefur safnað 237 þúsund krónum. 

Þegar þessi frétt er skrifuð hefur 124,3 milljónum verið safnað til styrktar hinum ýmsu góðgerðarmálum vegna hlaupsins en lista yfir alla hlaupara og hvaða málefni þau hlaupa fyrir má sjá hér






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.