Fylkir hafði betur í toppslagnum og Grótta heldur í vonina Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 23. ágúst 2022 21:20 Fylkismenn nálgast endurkomu í Bestu-deild karla. Vísir/Hulda Margrét Seinni þremur leikjum kvöldsins í Lengjudeild karla lauk nú rétt í þessu. Fylkismenn eru svo gott sem búnir að tryggja sér sæti í Bestu-deildinni eftir 0-2 sigur gegn HK, Grótta heldur enn í vonina eftir nauman 1-0 sigur gegn Þór og Afturelding vann öruggan 4-0 sigur gegn Þrótti Vogum.
Það var mikið undir í leik HK og Fylkis í kvöld, enda toppliðin tvö í Lengjudeildinni að mætast. Fyrir leikinn voru Fylkismenn með tveggja stiga forskot á toppnum og gátu því komið sér í vænlega stöðu fyrir seinustu fjórar umferðirnar. Það er nákvæmlega það sem þeir gerðu því Mathias Laursen tryggði liðinu 0-2 sigur með tveimur mörkum á seinustu tuttugu mínútum leiksins. Fylkir er nú með 42 stig á toppi deildarinnar þegar fjórar umferðir eru eftir, fimm stigum meira en HK sem situr í öðru sæti. Þá vann Grótta nauman 1-0 sigur gegn Þór þar sem Ásgeir Marinó Baldvinsson varð fyrir því óláni að skora eina mark leiksins í sitt eigið net. Kjartan Kári Halldórsson fékk að líta rautt spjald í liði Gróttu þegar tæpar tuttugu mínútur voru til leiksloka, en manni færri náðu Gróttumenn að sigla sigrinum heim. Grótta situr því í þriðja sæti deildarinnar með 31 stig, sex stigum á eftir HK sem situr í öðru sætinu, en efstu tvö liðin vinna sér inn sæti í deild þeirra bestu. Að lokum vann Afturelding sannfærandi 4-0 sigur gegn Þrótti Vogum þar sem Javier Ontiveros Robles skoraði þrennu og Guðfinnur Þór Leósson skoraði eitt. Upplýsingar um markaskorara og atvik fengust á Fótbolti.net.
Lengjudeild karla Fylkir Grótta HK Þór Akureyri Mest lesið Þjálfari heimsmeistaranna segir hegðun Argentínu óþolandi og óásættanlega Fótbolti Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Golf Björgvin Karl í fjórða sæti heimsleikanna Sport Varane bannar ungum leikmönnum að skalla Fótbolti Guðmundur Oddsson látinn Golf Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Körfubolti Sinner og Djokovic þurfa að draga sig úr keppni Sport Æfir íslenskuna daglega í klefanum Íslenski boltinn Myndaveisla frá endurkomu Söru Bjarkar Íslenski boltinn Sjáðu markaveislu gærdagsins í Víkinni Fótbolti Fleiri fréttir Fór snemma út af í jafntefli við nýliðana Varane bannar ungum leikmönnum að skalla Sjáðu markaveislu gærdagsins í Víkinni Þjálfari heimsmeistaranna segir hegðun Argentínu óþolandi og óásættanlega Æfir íslenskuna daglega í klefanum Myndaveisla frá endurkomu Söru Bjarkar „Virkilega sáttur við framlag leikmannanna“ „Bárum of mikla virðingu fyrir þeim“ Uppgjörið: Víkingur R. - Keflavík 5-1 | Engin Evrópuþynnka í Víkingum „Búin að slá út ansi öflug lið“ Taugarnar þandar í endurkomusigri Njarðvíkur Tap í fyrsta leik Söru Bjarkar fyrir Hauka síðan 2008 Uppgjörið: Þróttur - ÍBV 1-0 | Þróttarar í bikarúrslit Hetja Þróttar: „Ákvað að hoppa og vona það besta“ Elfar Árni tryggði Völsungum mikilvægan sigur á Mærudögum United skoraði fimm gegn strákunum hans Freys Afturelding kaupir Kristin Frey frá Val Garnacho vonast til að endurheimta sjálfstraust sitt hjá Villa Van Bommel tekur við Belgíu Entist skammt í þjálfarastólnum Völler fer og Arsenal-hetja starfar með Klopp „Nýtt verkefni og nýr leikur“ Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Töluðu við Ancelotti áður en þeir reyndu við Guardiola Klopp kynntur sem nýr landsliðsþjálfari Þýskalands Chelsea að hreppa Lacroix Myndband með afa heimsmeistarans bræddi hjörtu HM-leikmaður í glannaakstri með kókaín í blóðinu Hættir með landsliðinu María lýsir erfiðri meðgöngu: „Þekki mig ekki í eigin líkama“ Sjá meira