Fótbolti

Phil Foden með þrennu í Meistara­deildinni í kvöld

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Phil Foden fagnar þriðja marki sínu í kvöld en hann steig fram í fjarveru Erlings Haaland.
Phil Foden fagnar þriðja marki sínu í kvöld en hann steig fram í fjarveru Erlings Haaland. AP/Dave Thompson)

Phil Foden var á skotskónum með Manchester City í Meistaradeildinni í fótbolta í kvöld. Erling Haaland var hvíldur og Foden sá til þess að City-liðið saknaði ekki norska framherjans.

Foden skoraði þrjú mörk í leiknum þegar City vann 5-1 sigur á gríska liðinu AEK Aþenu og hann átti líka eina stoðsendingu að auki.

Elliot Anderson og Rayan Cherki skoruðu hin mörkin en Stavros Pilios minnkaði muninn í 2-1 snemma í síðari hálfleik.

Napoli vann dramatískan 4-3 sigur á norska liðinu Bodø/Glimt á Ítalíu en Norðmennirnir jöfnuðu í 1-1 og 2-2 en þeir skoruðu líka síðasta mark leiksins í uppbótartíma sem kom bara of seint.

Scott McTominay skoraði tvö mörk fyrir Napoli en Matteo Politano skoraði fyrsta markið og fjórða markið var sjálfsmark. Jens Petter Hauge, Andreas Helmersen og Sondre Brunstad Fet skoruðu mörk norska liðsins.

Mario Hermoso, Nahuel Molina, Niccolò Pisilli og Donyell Malen skoruðu mörk Roma í 4-0 sigri á Slovan Bratislava. Malen skoraði síðasta markið úr víti eftir að hafa lagt áður upp tvö mörk.

Guus Til skoraði eina markið þegar PSV Eindhoven vann 1-0 útisigur á Porto.

Julián Álvarez skoraði jöfnunarmark Atlético Madrid í 1-1 jafntefli á útivelli á móti Stuttgart. Jamie Leweling hafði komið Stuttgart í 1-0 á 36. mínútu en Álvarez jafnaði snemma í seinni hálfleik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×