HK tapaði og FH endurheimtir sæti í Bestu-deild kvenna Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 25. ágúst 2022 21:36 FH mun leika í Bestu-deild kvenna á næsta tímabili. FH.is Fjórir leikir fóru fram í Lengjudeild kvenna í knattspyrnu í kvöld, en eftir úrslit kvöldsins er ljóst að FH mun leika í Bestu-deildinni á næsta tímabili þrátt fyrir að enn séu tvær umferðir eftir.
Topplið FH heimsótti Grindavík fyrr í kvöld og fyrir leikinn var ljóst að sigur myndi koma liðinu langleiðina upp í Bestu-deild kvenna. FH átti ekki í miklum vandræðum með Grindvíkinga, en liðið vann að lokum öruggan 0-4 sigur þar sem Telma Hjaltalín Þrastardóttir skoraði þrennu í fyrri hálfleik áður en Maggý Lárentsínusdóttir gulltryggði sigurinn í síðari hálfleik. Þessi úrslit þýddu að ef HK myndi tapa er liðið tók á móti Víkingi R. þá væru FH-ingar öruggir með sæti í Bestu-deildinni. Arna Sól Sævarsdóttir kom HK yfir strax í upphafi leiks, en mörk frá Hafdísi Báru Höskuldsdóttir og Christabel Oduro sitt hvorum megin við hálfleikinn tryggðu Víkingi 1-2 sigur. FH-ingar munu því leika í Bestu-deild kvenna á næsta tímabili og vegna þess að HK tapaði þá er Tindastóll einnig í kjörstöðu fyrir seinustu tvæ umferðirnar. FH-ingar sitja á toppnum með 40 stig, Tindastóll í öðru sæti með 37 stig, HK í því þriðja með 33 stig og Víkingur í fjórða með 32 stig. HK og Víkingur halda því enn í veika von um sæti í deild þeirra bestu, en Tindastóli, sem vann 5-0 sigur gegn Fjölni í kvöld, nægir einn sigur úr seinustu tveimur leikjunum til að tryggja sér sæti í Bestu-deildinni.
Lengjudeild kvenna FH HK Mest lesið Pulis skellihló er hann gerði grín að íslensku eigendunum Enski boltinn Tottenham vill ekki láta kalla sig Tottenham Enski boltinn Sigurlíkur Liverpool minnkuðu Fótbolti „Ég lét þetta ekki brjóta mig niður og hafa áhrif á mig“ Fótbolti Gaf unnustu sinni vænt olnbogaskot í leik Fótbolti Áhugi Íslendinga heillaði: Ísak hafnaði Noregi til að herma eftir afa Handbolti Í beinni: Everton - Manchester United | Framlengir Moyes martröð Rauðu djöflanna? Enski boltinn Tók vítið í leyfisleysi og var skipt út af þótt hann hefði skorað Fótbolti Jón Dagur í frystiklefa í Berlín Fótbolti „Stundum reynir á samskipti okkar feðga“ Handbolti Fleiri fréttir ÍR heldur áfram að hrella liðin úr Bestu deildinni Arnór Smára hættir sem yfirmaður knattspyrnumála hjá Val Sindri Kristinn á óskalista KA Býst við Grikkjunum betri í kvöld „Þetta er einstakur strákur“ Barðist við tárin þegar hann kvaddi Eru þetta stærstu félagsskiptin síðan Pétur fór í KR? „Einbeiti mér að allt öðru en einhverri dramatík á Íslandi“ Faðir Gylfa Þórs segir Börk hafa gert samkomulag við sig „Kemur pabba mínum ekki við hvar ég spila fótbolta“ Nýr lögfræðingur KSÍ á yfir fjögur hundruð leiki í meistaraflokki Umdeild frammistaða Gylfa í kveðjuleiknum Samskiptin furðuleg og fólk tengt Gylfa við stýrið Erlendir miðlar fjalla um skipti Gylfa Þórs: Verður samherji Gunnars Vatnhamar Skagamenn horfa áfram til yngri leikmanna Gylfi má ekki spila með Víkingi í Sambandsdeildinni Freyr vill Höskuld en Blikar sögðu nei Víkingur staðfestir komu Gylfa Stjórn Vals segir Gylfa hafa sýnt liðsfélögunum vanvirðingu Gylfi hefur náð samkomulagi við Víking Nýi markvörðurinn hjá KA sleit hásin Valur samþykkti tilboð í Gylfa Birkir Jakob snýr heim frá Ítalíu og semur við Val Staðfestir brottför Danijels sem spilar ekki á fimmtudag Vestri fær bakvörð frá Svíþjóð KR lánar Óðinn til ÍR Sjáðu fimm marka flengingu frá meisturunum Gylfi fyrirliði í jafntefli á Akranesi Víkingar með lægra tilboð en „grín“ í Gylfa Valur og Breiðablik í góðum gír í Lengjubikar kvenna Sjá meira