Íslenski boltinn

Lands­liðs­konan ó­létt og leggur skóna á hilluna

Sindri Sverrisson skrifar
Natasha Anasi fékk innrammaða treyju fyrir leik í Njarðvík í dag sem sýndi félögin hennar og árin sem hún hefur spilað á Íslandi. Jón Ólafur Daníelsson og Gylfi Tryggvason afhentu henni glaðninginn.
Natasha Anasi fékk innrammaða treyju fyrir leik í Njarðvík í dag sem sýndi félögin hennar og árin sem hún hefur spilað á Íslandi. Jón Ólafur Daníelsson og Gylfi Tryggvason afhentu henni glaðninginn. vísir/Stefán

Natasha Anasi, landsliðskona Íslands í fótbolta, er ólétt og hefur ákveðið að leggja takkaskóna á hilluna. Þessi 35 ára miðvörður með sitt mikla markanef fékk heiðursgjöf fyrir leik í Njarðvík í dag.

Natasha er frá Texas í Bandaríkjunum en hefur fyrir löngu fest rætur á Íslandi. Hingað kom hún fyrst til að spila með ÍBV árið 2014 og hefur hún einnig leikið með Keflavík, Val og loks Grindavík/Njarðvík í sumar, auk þess að hafa spilað með Brann í Noregi 2023-24.

Tvö liðanna hennar, Grindavík/Njarðvík og ÍBV, mættust í dag í Bestu deildinni og fékk Natasha innrammaða treyju sem búið var að merkja sérstaklega til að sýna feril hennar hér á landi og með íslenska landsliðinu.

Natasha lék sína fyrstu A-landsleiki árið 2020 og var í hópnum sem fór á EM í Sviss í fyrra. Alls hefur hún leikið níu A-landsleiki og skorað eitt mark og hún var í hópnum sem vann Króatíu í nýafstöðnum undanúrslitum HM-umspils.

Natasha náði á ferlinum að skora 46 mörk í 186 deildarleikjum.

Nú á Natasha hins vegar von á sínu öðru barni og hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna. Hún er gift körfuboltaþjálfaranum Rúnari Inga Erlingssyni sem fyrir átti einn son.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×