Besta lífræna merkið í Bretlandi
Vörurnar eru reglulega í umfjöllun hjá Vogue og hafa unnið til yfir 70 verðlauna fyrir bæði hreinleika og einstaka virkni. Evolve hefur tvisvar sinnum verið valið besta lífræna vörumerkið í Bretlandi, árið 2018 og svo aftur 2021.

Hyaluronic serumið er ein af vinsælustu Evolve vörunum enda hefur það unnið fjöldan allan af verðlaunum. Serumið inniheldur náttúrulegar hyaluronic sýrur sem veita gífurlegan raka og ganga inn að innsta lagi húðarinnar, lyfta upp fíngerðum línum og hrukkum. Serumið inniheldur einnig lífrænt pomegranate þykkni sem mýkir og verndar húðina.

Retinol gullmaskinn er einstök vara frá Evolve. Maskinn er stútfullur af bio-retinoli sem vinnur á ummerkjum öldrunar, nærir húðina og veitir henni raka og ljóma.
Tryggja ferskleika og virkni
Snyrtivörur Evolve eru handgerðar af kærleik í Hertfordshire á Englandi. Stofnandi fyrirtækisins, Laura Rudoe, hóf framleiðslu á Evolve eftir að hafa glímt við ýmiskonar húðvandamál í langan tíma. Þá vildi hún framleiða náttúrulegar og lífrænar vörur með góða virkni, sem neytendur væru ánægðir með og hefði jafnframt jákvæð áhrif á jörðina. Hráefnin sem notuð eru við framleiðsluna á Evolve vörunum koma frá litlum framleiðendum og ræktendum víðs vegar um heiminn. Evolve snyrtivörurnar eru framleiddar í litlum skömmtum í einu. Slíkt er gert til þess að hámarka ferskleika og virkni hráefnanna.

Annt um umhverfið
Markmið Evolve vörulínunnar er að hanna vörur sem eru hreinni, grænni og mildari fyrir húðina og jörðina. Fyrirtækið vill vera leiðandi í sjálfbærni innan snyrtivöruiðnaðarins og hefur stofnandinn Laura Rudoe meðal annars sagt: ,,Við trúum því að það sé kominn tími fyrir fegurð að þróast. Samfélagið er að átta sig á því að það að velja náttúruleg innihaldsefni er betra fyrir okkur og fyrir allan heiminn.“

Evolve er vegan, „cruelty free“ og umhverfisvænt vörumerki. Allar vörur Evolve eru í pakkningum sem eru að stórum hluta gerðar úr grasi, sem þýðir að minni orka, vatn og efni eru notuð við framleiðsluna.
Vörumerkið leggur áherslu á að vera heiðarlegt og gagnsætt svo að viðskiptavinir geti treyst því að vita hvað þeir séu að setja á húð sína.
Evolve vill að notendur upplifi ánægjulegar stundir á hverjum degi með notkun á vönduðum vörum með einstakri virkni.