Lífið

„Ég hef sært fólk“

Elísabet Hanna skrifar
Gwyneth Paltrow fer yfir mistök fortíðarinnar og bíður spennt eftir framtíðinni.
Gwyneth Paltrow fer yfir mistök fortíðarinnar og bíður spennt eftir framtíðinni. Getty/Theo Wargo

Leikkonan Gwyneth Paltrow er að undirbúa sig fyrir fimmtugsafmælið sitt og fer yfir mistök fortíðarinnar í nýjum pistli sem hún birti á heimasíðu sinni Goop. Hún segir andann sinn ekki bera ummerki tímans sem hefur liðið en aftur á móti segir hún líkamann gera það.

Sættir sig við að vera mennsk

Goop er lífsstílsmerki sem leikkonan hefur byggt upp síðustu ár. Á síðunni birti hún hugsanir sínar um fimmtugsafmælið sitt sem nálgast. „Líkami minn, kort af sönnunargögnum allra þeirra daga sem ég hef lifað, er ekki jafn tímalaus og sálin. Safn af blettum og misfellum sem bera ummerki hvers kafla lífsins. Ör eftir ofnbruna, ör á fingri eftir brotinn glugga fyrir löngu síðan, barnsburður. Silfurlitað hár og fínar línur,“ segir hún meðal annars í færslunni.

„Ég tek líkamann minn í sátt og sleppi þörfinni fyrir að vera fullkomin, að líta fullkomlega út,“ segir hún einnig. Gwyneth segist vera hætt að reyna að vinna gegn þyngdaraflinu og sættir sig við það að vera mennsk. 

Fer yfir mistök fortíðarinnar

Hún segir aldurinn líka vera að hjálpa sér að vinna úr mistökum fortíðarinnar. „Ég hef sært fólk, aldrei viljandi en engu að síður sært það.“ Hún segir mistök fortíðarinnar stundum halda fyrir sér vöku. Hún segir sín stærstu mistök þó stafa af þeim augnablikum þegar hún sagði ekki sannleikann. 

Þá talar hún um aðstæður þar sem einstaklingar, verkefni eða hegðun létu henni ekki líða vel og hún vissi að væri rangt. Hún sér eftir því að hafa ekkert sagt á þeim tíma.

Í færslunni biður hún þá sem hún hefur sært afsökunar og segir að hlutir í lífinu séu ekki svartir og hvítir heldur gráir. Hún segir að þó svo að hún hafi enga þolinmæði, blóti öðrum bílstjórum og geti orðið ísköld við annað fólk sé hún líka gjafmild, fyndin, hugrökk og klár. 

Börnin hennar stærsta afrek

Gwyneth segist einnig vona að börnin sín viti að þau séu hennar helsta afrek í lífinu. Á næstu árum vonast hún meðal annars til þess að geta dregið sig meira í hlé, minnkað innsta hringinn sinn, sungið meira og eldað meira.


Tengdar fréttir

Gwyneth Paltrow sýnir heimilið sem inniheldur spa

Gwyneth Paltrow opnaði dyrnar að heimili sínu í Montecito fyrir Architectural Digest. Húsið byggðu þau fjölskyldan frá grunni og inniheldur það mikið af fallegum, einstökum munum og virðist sækja innblástur til Evrópu. Eins og sannri Hollywood stjörnu sæmir inniheldur húsið spa með handgerðum flísum sem hún segist nota daglega.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.