Á batavegi eftir fólskulega hnífstunguárás við Sprengisand Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar 3. október 2022 15:50 Hjálmar ásamt foreldrum sínum, Þórhalli Sverrissyni og Hildi Hjálmarsdóttur, í fyrsta göngutúrnum eftir árásina. Hildur Hjálmarsdóttir Móðir pilts sem ráðist var á í undirgöngum við Sprengisand segist hafa í gegnum tíðina haft áhyggjur af því að sonur hennar noti ekki hjálm við hjólreiðarnar en grunaði ekki að hann gæti orðið fyrir hnífstunguárás á leið sinni á íþróttaæfingu. Pilturinn er ekki með bílpróf og er hjólið hans fararskjótur en eftir árásina er eðlilega óhugur í honum og foreldrunum.
Hjálmar Þórhallsson sem varð átján ára á árinu var að hjóla á íþróttaæfingu í Laugardalnum um miðjan september þegar ráðist var á hann. Hjálmar var stunginn þrisvar sinnum; djúpt í utanvert lærið, aftur ofar þar sem hnífurinn fór í gegn og í litla slagæð – og í þriðja skiptið ofarlega við mjaðmabein. Hann missti mikið blóð, var fluttur á gjörgæslu og þurfti að fara í aðgerð. Tveir heimar mætast Hjálmar mætti árásarmanninum í undirgöngunum við Sprengisand og ætlaði maðurinn að ræna hjólinu hans. Hjálmar var nýbúinn að kaupa sér fínt rafmagnshjól og var ekki tilbúinn að láta það af hendi. Þá réðst maðurinn á Hjálmar. „Atburðurinn er alvarlegur og kemur okkur öllum við,“ segir Hildur Hjálmarsdóttir, móðir Hjálmars. „Þarna mætast tveir heimar; barn á leið á íþróttaæfingu og fíkniefnaneytandi að reyna að fjármagna næsta skammt. Svo er spurning hvort við sættum okkur við að börnin okkar geti ekki ferðast á milli hverfa án þess að eiga það á hættu að vera rænd með vopnum með alls konar afleiðingum.“ Barðist fyrir hjólinu Hildur segir Hjálmar hafa verið mjög veikan fyrst á eftir en sé að jafna sig hægt og rólega. Hann er farinn aftur í skólann en íþróttaæfingarnar bíða aðeins. Ekki er talið að hann verði fyrir varanlegum skaða. Hún segir það taka tíma fyrir bæði hann og foreldrana að jafna sig á þessu andlega en að hann sé þó ansi brattur. „Hann tekur þessu ekki sem persónulegri árás. Hann veit að maðurinn vildi bara stela hjólinu en hann vildi passa það og var ekki tilbúinn að gefa það eftir. Hann barðist fyrir hjólinu enda er það hans fararskjóti í lífinu – í skólann og fimm sinnum í viku á íþróttaæfingu.“ Tveir nítján ára piltar til bjargar Árásin átti sér stað við undirgöngin fyrir framan Atlantsolíu og var fólk þar sem varð vitni að árásinni en flestir áttuðu sig ekki á alvarleikanum. Ekki fyrr en tveir nítján ára piltar hlupu á svæðið til að kanna betur aðstæður. Þá flúði árásarmaðurinn og elti annar piltanna manninn á meðan hinn hlúði að Hjálmari og kallaði eftir hjálp. Hildur segir fjölskylduna eiga þessum piltum mikið að þakka enda hafi árásin verið með þeim hætti að hún hefði getað endað enn verr. Piltarnir gátu vísað lögreglu á árásarmanninn og náðist hann strax. Hann var dæmdur í gæsluvarðhald til 12. október. Árásin átti sér stað við þessi göng undir Reykjanesbraut, skammt hjá Atlantsolíu við Sprengisand.Vísir/Vilhelm Ekki í standi til að vera úti í samfélaginu „Lögregla kannaðist strax við manninn enda síbrotamaður sem hafði verið tekinn fyrir ýmis brot dagana og vikurnar á undan,“ segir Hildur en hún segist gera sér grein fyrir að erfitt sé að eiga við slíkt, það vanti pláss og úrræði. Einnig að hún hafi samúð með fólki sem sé djúpt sokkið í heim fíkniefna. „En í því ástandi sem maðurinn var í þá var hann að okkar viti ekki í nokkru standi til að vera úti í samfélaginu. Þarna er blásaklaus einstaklingur sem lendir í fólskulegri árás. Það getur hver sem er lent í þessu, manni finnst þetta einhvern veginn vera nýr veruleiki.“ Vilja benda á þennan nýja veruleika Hildur og maðurinn hennar skrifuðu Facebook-færslu í gær um líðan Hjálmars og deildu þeim gleðifréttum að hann væri að jafna sig smátt og smátt. En einnig vildu þau benda á þessa hættu. „Ég hef aldrei haft áhyggjur af því að ráðist verði á Hjálmar. Ég hef frekar haft áhyggjur af því að hann gleymi því að nota hjálm,“ segir Hildur en bætir við að Hjálmar sé allur að koma til og vilji sem minnst gera úr þessari árás. „Ekki frekar en öðrum hlutum enda magnaður náungi. Mættur í skólann og hangir í tölvunni sem aldrei fyrr. Svo styttist í að hann geti farið að mæta á æfingar og detti í sína gömlu rútínu.“
Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Erlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Fleiri fréttir Viðurkennir ónákvæmt svar um fundi án Harðar Fjórtán fá styrk frá Eyjólfi Karlmaður um þrítugt játar rúðubrot á Seltjarnarnesi Þriðjungur undir áhrifum í rafskútuslysum Bein útsending: 18 ára og hvað svo? Viðreisn í Kópavogi vill fresta nýjum einkunnakvarða Daði svarar fyrir Landsvirkjunarmálið Stjórnin láti hendur standa fram úr ermum við brottvísanir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Sjá meira