Lífið

Scooby-Doo per­sóna kemur út úr skápnum

Elma Rut Valtýsdóttir skrifar
Aðdáendur þáttanna um Scooby-Doo gleðjast yfir því að Velma Dinkley sé komin út úr skápnum.
Aðdáendur þáttanna um Scooby-Doo gleðjast yfir því að Velma Dinkley sé komin út úr skápnum. Warner Bros

Persónan Velma Dinkley úr þáttunum um hundinn snjalla Scooby-Doo og vini hans í félaginu Ráðgátur hf. er komin út úr skápnum. Í nýrri kvikmynd um fimmmenningana verður Velma ástfangin af annarri kvenpersónu.

Upphaflegu þættirnir um Scooby-Doo hófu göngu sína árið 1969. Síðan þá hafa verið gerðar ótal margar þáttaraðir, teiknimyndir og tvær leiknar kvikmyndir.

Nýja myndin Trick or Treat Scooby-Doo! kom út í gær. Aðalpersónurnar Scooby, Shaggy, Daphne, Fred og Velma eru öll á sínum stað. En auk þess fá áhorfendur að kynnast nýrri persónu, búningahönnuðinum Coco Diablo.

Í kvikmyndinni verður Velma hrifin af Coco. Í myndbrotinu hér að neðan má sjá þegar Velma ber Coco augum í fyrsta sinn og verður augljóslega heilluð.

Skrifaði persónuna upphaflega sem samkynhneigða

Miðað við viðbrögð á samfélagsmiðlinum Twitter taka aðdáendur þessum tíðindum fagnandi. Hörðustu aðdáendur hafa lengi talið sig vita að Velma væri samkynhneigð, þrátt fyrir að hún hafi átt í ástarsambandi við karlmann í leiknu kvikmyndinni Scooby-Doo 2: Monsters Unleashed frá árinu 2004.

Kvikmyndagerðarmaðurinn James Gunn skrifaði handritið að báðum leiknu kvikmyndunum sem gerðar hafa verið um fimmmenningana. Gunn segist upphaflega hafa skrifað persónu Velmu sem samkynhneigða en sú hugmynd hafi ekki hlotið góðar undirtektir.

Lokaniðurstaðan hafi verið sú að Velma yrði hrifin af safnverðinum Patrick, þvert á vilja handritshöfundar. Í atriðum sem klippt voru úr kvikmyndinni hefði mátt sjá ýmsar vísbendingar um raunverulega kynhneigð Velmu.

„Engar nýjar fréttir hér“

Árið 2020 deildi framleiðandinn Tony Cervone mynd af Velmu á Instagram-síðu sinni í tengslum við Pride Month. Af henni að dæma hefur það lengi verið vitað að Velma væri samkynhneigð, þó svo að það hafi ekki verið gert opinbert fyrr en nú.

„Við reyndum að hafa þetta eins skýrt og við gátum og flestir aðdáendurnir náðu þessu. Þið sem náðuð þessu ekki, ég legg til að þið horfið betur. Það eru engar nýjar fréttir hér,“ skrifaði Cervone. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.