Lífið

„Mest krefjandi ferð okkar til þessa“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Sigrún Ósk fer af stað með nýja þáttaröð sunnudaginn 23. október. 
Sigrún Ósk fer af stað með nýja þáttaröð sunnudaginn 23. október. 

Fimmta þáttaröð af Leitinni að upprunanum fer í loftið sunnudagskvöldið 23. október, en í henni leita fimm Íslendingar uppruna síns um víða veröld.

„Þáttaröðin hefur verið í vinnslu í nokkur ár enda setti faraldurinn allt á hliðina hjá okkur eins og öðrum. En nú er hún loksins á leið í loftið, eftir langan undirbúning, blóð, svita og tár,“ segir Sigrún Ósk Kristjánsdóttir umsjónamaður þáttanna.

Allir sem eru með í þáttunum núna eiga það sameiginlegt að hafa verið ættleiddir hingað til lands.

„Sögur þeirra eru samt mjög ólíkar. Sum voru ákveðin í að leita upprunans allt frá barnæsku og aðrir höfðu engan áhuga fyrr en á fullorðinsárum. Það er líka svo magnað hvað þessar sögur og þessi mál geta komið manni á óvart, alltaf þegar maður heldur að nú sé maður búinn að sjá allt þá gerist eitthvað óvænt og nýtt. Raunveruleikinn oft ótrúlegri en nokkur skáldskapur,“ segir Sigrún og heldur áfram.

„Ég held það megi líka fullyrða að í þessari þáttaröð fái fólk að sjá mest krefjandi ferð okkar til þessa, en við fórum í níu flugferðir á örfáum dögum í Kólumbíu,“ segir Sigrún en hún og teymið flaug landið þvert og endilagt í leit að fólki.

„Hin löndin sem við heimsækjum eru Gvatemala og Sri Lanka. Ég er kannski ekki hlutlaus, en ég mæli með að fólk taki þessi sex sunnudagskvöld frá og fylgist vel með frá byrjun.“

Meðfylgjandi er stikla þar sem fólk getur fengið að sjá örlítið sýnishorn af því sem er væntanlegt á skjáinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.