Bandarískir og franskir þingmenn krefjast að FIFA beiti sér vegna látins verkafólks í Katar Valur Páll Eiríksson skrifar 13. október 2022 11:30 Francois Nel/Getty Images Þingmenn frá bæði Bandaríkjunum og Frakklandi hafa sent bréf á Gianni Infantino, forseta Alþjóðaknattspyrnusambandsins, FIFA, þar sem þess er krafist að sambandið greiði fjölskyldum látinna verkamanna í Katar bætur. Þúsundir verkafólks eru talin hafa látið lífið við uppbyggingu heimsmeistaramóts karla í fótbolta sem hefst í Katar í nóvember.
Talið er að um tólf verkamenn að meðaltali hafi látist í hverri viku frá því að Katar tryggði sér mótið í desember 2010. Andlát verkamanna telji á þúsundum. Í samantekt The Guardian frá því í febrúar í fyrra var talið að 6.500 í það minnsta hefðu látið lífið við uppbyggingu mótsins. Bandaríski þingmaðurinn Jan Schakowsky fór fyrir 15 manna hópi þingmanna sem sendu bréf á Infantino þann 29. september. Í bréfinu er þess krafist að verkafólk sem þurfti að þola misnotkun eigi skildar bætur sem og fjölskylda verkafólks sem hafi látist. „Við stöndum með verkafólkinu og flykkjum okkur bakvið verkalýðsfélög og mannréttindasamtök um heim allan sem hafa kallað eftir því að FIFA setji upp bótasjóð, ásamt vinnumálastofnun verkafólks, áður en heimsmeistaramótið er flautað á,“ segir í bréfi bandarísku þingmannana. Í fyrradag, þann 11. október, skrifuðu yfir 120 franskir þingmenn undir kröfu þar sem bar við svipaðan tón. Þar er kallað eftir að FIFA „setji upp, eins fljótt og auðið er, sjóð með að lágmarki 440 milljónir bandaríkjadala, til að greiða bætur til allra verkamanna, eða fjölskyldna þeirra, sem tóku þátt í undirbúningi heimsmeistaramótsins, hverra mannréttindi voru fótum troðin“. Mikið hefur borið á slíkum kröfum á FIFA undanfarnar vikur þar sem herferðin undir myllumerkinu #PayUpFIFA (Borgið brúsann FIFA) hefur náð auknu fylgi. Fjórir af 14 meginstyrktaraðilum FIFA hafa lýst yfir stuðningi við hreyfinguna (Budweiser, Adidas, Coca-Cola og McDonald's) sem og Lisa Klaveness og Bernd Neuendorf, formenn norska og þýska knattspyrnusambandsins, og bæði enska og hollenska knattspyrnusambandið. Mannréttindasamtökin Human Rights Watch segja að „nú þegar 40 dagar eru þar til fyrsta sparkið verður tekið á heimsmeistaramótinu, eigi FIFA, fremur en að einblína á hvernig þetta verði besta heimsmeistaramót sögunnar, að snúa sér að þeim gríðarlega kostnaði, þar á meðal mannlegum kostnaði, sem mótið hefur skapað“.
HM 2022 í Katar Mannréttindi Katar FIFA Tengdar fréttir Yfirvöld í Katar skylda ríkisborgara til vinnu í kringum HM Yfirvöldum í Katar færist mikið í fang að halda utan um eins stóran viðburð og heimsmeistaramótið í fótbolta sem fer fram í smáríkinu í nóvember og desember. Borgarar ríkisins þurfa að sinna þegnskyldu í kringum mótið. 29. september 2022 12:30 Danir spila í mótmælatreyjum á HM Danski íþróttavöruframleiðandinn Hummel segir að með hönnun á nýju HM-treyju danska landsliðsins í fótbolta sé ætlunin að mótmæla Katar og mannréttindabrotum þar í landi. 28. september 2022 16:31 Verði að borga bætur fyrst þeir hafi verið „svona sniðugir“ Louis van Gaal, landsliðsþjálfari Hollands, segir að fjölskyldur verkamanna sem létust í Katar, þar sem þeir unnu við uppbyggingu fyrir heimsmeistaramótið í fótbolta, eigi „að sjálfsögðu“ að fá bætur frá FIFA. 20. september 2022 16:30 Franskar stórborgir sniðganga HM í Katar Borgaryfirvöld í París, höfuðborg Frakklands, tilkynntu í gærkvöld að borgin muni sniðganga heimsmeistaramót karla í fótbolta í Katar í vetur. Engir risaskjáir verða settir upp í borginni líkt og hefð er fyrir. 4. október 2022 17:15 Í það minnsta átta þjóðir munu spila með regnbogaarmbönd í Katar Fjölmargir hafa lýst yfir áhyggjum yfir réttindum hinsegin fólks í Katar í aðdraganda heimsmeistaramóts karla í fótbolta sem fer þar fram í vetur. Í það minnsta átta þátttökuþjóðir munu sýna réttindabaráttu hópanna samstöðu á mótinu. 22. september 2022 08:32 HM-hótel í Katar banna samkynhneigðum að koma Nokkur af hótelunum sem taka á móti gestum á HM karla í fótbolta í Katar í lok árs banna samkynhneigðum að koma. Fjöldi þeirra gerir þá kröfu að gestir „sýni“ ekki að þeir séu samkynhneigðir. 12. maí 2022 08:00 Stuðningsmenn muni bera kostnaðinn af dýrasta HM sögunnar Stuðningsmenn liða sem taka þátt á HM karla í fótbolta í Katar í vetur sjá fram á gríðarlegan útlagðan kostnað. Samkvæmt úttekt breska miðilsins Telegraph getur kostað stuðningsmenn rúmlega 1,1 milljón íslenskra króna að fara á mótið. 3. júní 2022 16:31 Mest lesið Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti „Hann sagði já takk“ Fótbolti Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Enski boltinn Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Fótbolti Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Fótbolti „Markmið að ná Íslandsmeistaratitli“ Sport Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Íslenski boltinn Vill taka upp „Steindavísitölu“ í íslenskum íþróttum Sport Fleiri fréttir Forsetinn segir Ronaldo enn vera lykilmann í landsliðinu Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Fjórar íslenskar stelpur mættust í markaleik í Texas „Hann sagði já takk“ Uppgjör: Fram-ÍA 2-4 | Tvö Skagamörk í uppbótartíma Loksins sigur hjá Tottenham Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Glódís Perla og félagar áfram með fullt hús á toppnum Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum UEFA gefur Infantino lokafrest til að afhenta lykilskjöl „Hann kvartar yfir öllu“ Titillinn undir: „Farið illa með okkur í sumar“ Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Norska tromman á heimsmeistaramótinu seldist fyrir margar milljónir Segir félagið ekki vera að styðja hann lengur Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Agabrot hafa ekki áhrif á næsta landsliðsval Arnars Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Kristinn kveður Breiðablik: „Hlutirnir fara ekki alltaf eins og maður sér þá fyrir sér“ Orri Steinn skoraði í miklum markaleik Karólína skoraði og fullkomin byrjun Inter heldur áfram Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flug Freys heldur áfram: „Þetta er alveg ótrúlega ljúft“ Siggi Raggi einu stigi frá titlinum Tómas gat ekki stöðvað niðurlægingu Hearts Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Sjá meira
Yfirvöld í Katar skylda ríkisborgara til vinnu í kringum HM Yfirvöldum í Katar færist mikið í fang að halda utan um eins stóran viðburð og heimsmeistaramótið í fótbolta sem fer fram í smáríkinu í nóvember og desember. Borgarar ríkisins þurfa að sinna þegnskyldu í kringum mótið. 29. september 2022 12:30
Danir spila í mótmælatreyjum á HM Danski íþróttavöruframleiðandinn Hummel segir að með hönnun á nýju HM-treyju danska landsliðsins í fótbolta sé ætlunin að mótmæla Katar og mannréttindabrotum þar í landi. 28. september 2022 16:31
Verði að borga bætur fyrst þeir hafi verið „svona sniðugir“ Louis van Gaal, landsliðsþjálfari Hollands, segir að fjölskyldur verkamanna sem létust í Katar, þar sem þeir unnu við uppbyggingu fyrir heimsmeistaramótið í fótbolta, eigi „að sjálfsögðu“ að fá bætur frá FIFA. 20. september 2022 16:30
Franskar stórborgir sniðganga HM í Katar Borgaryfirvöld í París, höfuðborg Frakklands, tilkynntu í gærkvöld að borgin muni sniðganga heimsmeistaramót karla í fótbolta í Katar í vetur. Engir risaskjáir verða settir upp í borginni líkt og hefð er fyrir. 4. október 2022 17:15
Í það minnsta átta þjóðir munu spila með regnbogaarmbönd í Katar Fjölmargir hafa lýst yfir áhyggjum yfir réttindum hinsegin fólks í Katar í aðdraganda heimsmeistaramóts karla í fótbolta sem fer þar fram í vetur. Í það minnsta átta þátttökuþjóðir munu sýna réttindabaráttu hópanna samstöðu á mótinu. 22. september 2022 08:32
HM-hótel í Katar banna samkynhneigðum að koma Nokkur af hótelunum sem taka á móti gestum á HM karla í fótbolta í Katar í lok árs banna samkynhneigðum að koma. Fjöldi þeirra gerir þá kröfu að gestir „sýni“ ekki að þeir séu samkynhneigðir. 12. maí 2022 08:00
Stuðningsmenn muni bera kostnaðinn af dýrasta HM sögunnar Stuðningsmenn liða sem taka þátt á HM karla í fótbolta í Katar í vetur sjá fram á gríðarlegan útlagðan kostnað. Samkvæmt úttekt breska miðilsins Telegraph getur kostað stuðningsmenn rúmlega 1,1 milljón íslenskra króna að fara á mótið. 3. júní 2022 16:31