FIFA

Fréttamynd

Sýður á Sviss­lendingum

Svisslendingar eru allt annað en ánægðir eftir að hafa fallið úr leik fyrir Argentínu í 8-liða úrslitum á HM karla í fótbolta í gær. Rautt spjald Breel Embolo skilur eftir óbragði í munni þeirra.

Fótbolti
Fréttamynd

Haaland eldri hraunar yfir dómarana

Alf-Inge Haaland, faðir norsku stórstjörnunnar Erling Braut Haaland, lét dómarann Clement Turpin og samstarfsfélaga hans í 2-1 tapi Noregs fyrir Englandi á HM í gær heyra það á samfélagsmiðlum eftir leik.

Fótbolti
Fréttamynd

FIFA hafnaði á­frýjun Frakka

FIFA vísaði áfrýjun franska knattspyrnusambandsins á gulu spjaldi Michaels Olise frá. Þetta staðfesti Didier Deschamps, landsliðsþjálfari, í dag.

Fótbolti
Fréttamynd

„Hrein­lega spilling í gangi í­trekað“

Töluverður þrýstingur er á forráðamönnum FIFA eftir að banni framherja Bandaríkjanna var slegið á frest á miðju heimsmeistaramóti, að því er virðist fyrir tilstilli Donalds Trump Bandaríkjaforseta.

Fótbolti
Fréttamynd

Evrópu­þing­menn kalla eftir rann­sókn á Infantino

Tugir þingmanna á Evrópuþinginu kalla eftir rannsókn á Gianni Infantino, forseta FIFA, og tengslum hans við Donald Trump Bandaríkjaforseta. Til skoðunar er hvort Infantino hafi haft áhrif á þá fordæmalausu ákvörðun FIFA að aflétta leikbanni Folarin Balogun á miðju heimsmeistaramóti.

Fótbolti
Fréttamynd

Segist ekkert hafa með afléttingu bannsins að gera

Folarin Balogun, framherji bandaríska landsliðsins, skilur að ákvörðun um að aflétta banni hans fyrir leik við Belgíu í 16-liða úrslitum á HM sé umdeild. Hann áréttar hins vegar að hann hafi ekkert haft með ferlið að gera.

Fótbolti
Fréttamynd

Infantino gefur út yfir­lýsingu vegna af­skipta Trumps

Gianni Infantino, forseti FIFA, segir sjálfstæði og óhæði dómsvalda hjá sambandinu vera algjört. Hann, og ekki síður Donald Trump Bandaríkjaforseti, hafi ekki haft áhrif á ákvörðun þess efnis að leikbann Folarin Balogun fyrir leik við Belgíu í kvöld hafi verið fellt niður.

Fótbolti
Fréttamynd

Meiri hraði á HM en tíma­sóun ekki al­veg úr sögunni

Nýjar reglur voru innleiddar fyrir heimsmeistaramótið í fótbolta sem hefst í gær en hér á landi hafa þessar reglur verið í gildi frá því að Bestu deildirnar hófust. Einn besti dómari deildarinnar segir nýju reglurnar hafa reynst vel og býst við hröðum, skemmtilegum leikjum á HM. Tímasóun er þó ekki alveg úr sögunni.

Fótbolti
Fréttamynd

„Slakiði á“

Gianni Infantino, forseti Fifa, hélt blaðamannafund í gær þar sem hann var spurður út í ýmislegt tengt heimsmeistaramótinu í fótbolta sem byrjar í kvöld. Hann sagði fjölmiðlum að slaka á og að verið væri að reyna að leysa öll vandamál.

Fótbolti
Fréttamynd

HM í fót­bolta: Sameiningaraflið sem sundrar

„Hér verða allir velkomnir árið 2026,“ sagði Gianni Infantino, forseti FIFA, við fjölmiðlamenn á síðasta ári um komandi heimsmeistaramót. Nú er ljóst að sú setning er eins röng og hún hljómaði vitleysisleg þegar hún var látin falla.

Fótbolti
Fréttamynd

Náðu miðum á HM án þess að borga fyrir þá

Sextíu einstaklingar náðu miðum á leiki á HM í fótbolta án þess að borga fyrir þá sökum galla á miðasöluvef FIFA. Sambandið krefst þess nú að umræddir einstaklingar borgi fyrir miðana innan sjö daga.

Fótbolti
Fréttamynd

FIFA og Sádar í eina sæng

FIFA hefur gert styrktarsamning við fjárfestingarsjóð Sádi-Arabíu, PIF, sem verður stuðningsaðili komandi heimsmeistaramóts í fótbolta. PIF bætist við sádíska olíufyrirtækið Aramco sem einn aðalstyrktaraðili mótsins.

Fótbolti