Hamraoui gæti leikið sinn fyrsta leik eftir árásina Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 14. október 2022 13:30 Kheira Hamraoui hefur ekki leikið með PSG í um ár. getty/Antonio Borga Kheira Hamraoui er í leikmannahópi Paris Saint-Germain fyrir riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu. Það gæti því styst í að hún spili sinn fyrsta leik síðan hún varð fyrir fólskulegri árás fyrir tæpu ári.
Hamraoui hefur ekkert spilað síðan hópur grímuklæddra manna réðist á hana og börðu hana með járnrörum í nóvember á síðasta ári. Aminata Diallo, samherji Hamraouis hjá Paris Saint-Germain, var handtekinn, grunuð um að hafa skipulagt árásina til að auk möguleika sína á að fá að spila með liðinu í stað Hamraouis. Diallo var svo sleppt og hún hefur alltaf haldið fram sakleysi sínu. Málið tók enn einn snúninginn þegar Diallo var aftur handtekinn á dögunum og ákærð fyrir grófa líkamsárás. Í lögregluskýrslu kemur fram að fyrir árásina hafi Diallo leitað sér upplýsinga á Google hvernig væri best að brjóta hnéskel. Diallo yfirgaf PSG eftir síðasta tímabil en Hamraoui er enn samningsbundin Parísarliðinu og er í leikmannahópnum sem það sendi inn fyrir riðlakeppni Meistaradeildarinnar sem hefst í næstu viku. Fyrsti leikur PSG í riðlakeppninni er gegn Englandsmeisturum Chelsea á fimmtudaginn. Íslenski landsliðsframherjinn Berglind Björg Þorvaldsdóttir leikur með PSG. Hamraoui kom til PSG frá Barcelona í fyrra. Hún lék áður með liðinu á árunum 2012-16. Hin 32 ára Hamraoui hefur leikið 39 landsleiki fyrir Frakkland og skorað þrjú mörk.
Franski boltinn Árásin á Kheiru Hamraoui Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Segir félagið í skítnum Enski boltinn Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Fyrstur síðan David Robinson var og hét Körfubolti Fleiri fréttir Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Moreira stal senunni í slagnum um Mílanó og hélt Alberti á toppnum Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Andreulegt upplegg í sigri Anderlecht Dramatík í stórleiknum í Þýskalandi Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Njarðvík sagði upp samningi við Smit Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Freyr að eignast markakóng eftir enn einn sigurinn Brentford bjargaði United frá fallsæti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Góður sigur stráka Sigga Ragga í lokaleiknum Gylfi tekur við Víkingi Sjáðu mörkin: Varnarmenn United eins og keilur og rautt spjald Martínez Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Carragher biðst afsökunar: „Klaufalegt og rangt“ Sjá meira